Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Meta Icelandair 126% yfir markaðsvirði

Read Full Article →

Akkur hefur fært verðmat sitt á Icelandair upp og metur nú hluta­bréf félagsins á 1,67 krónur á hlut. Það er um 126% yfir dagsloka­gengi bréfanna í gær sem lokuðu í 0,74 krónum á hlut. Verðmatið felur því í sér að virði Icelandair sé rúm­lega tvöfalt hærra en markaðurinn verð­leggur félagið nú. Í upp­færðu verðmati Akkurs kemur fram að greiningar­fyrir­tækið telji markaðinn of svartsýnan á Icelandair. Félagið sé nú verðlagt líkt og það muni áfram búa við varan­lega lága arð­semi, en Akkur telur að sú sýn endur­spegli ekki nægi­lega þær rekstrar­bætur sem þegar hafa komið fram og þau tækifæri sem felist í endur­nýjun flota félagsins. Verðmat Akkurs byggir meðal annars á sjóð­streymis­mati, sem gefur verð upp á 1,50 krónur á hlut, og mati á grund­velli eðli­legrar EBIT-fram­legðar, sem gefur verð upp á 1,85 krónur á hlut. Niður­staðan er mark­verð upp á 1,67 krónur á hlut. Akkur bendir á að rekstur Icelandair hafi styrkst á nokkrum sviðum. Nýting flug­véla sé mikil, eininga­tekjur hafi batnað og skuld­setning félagsins lækkað. Þá telji greiningar­fyrir­tækið að rekstur Icelandair geti skilað veru­legu sjóð­streymi á næstu árum. Sam­kvæmt mati Akkurs gæti upp­safnað rekstrar­sjóð­streymi á árunum 2026 til 2028 orðið meira en núverandi markaðsvirði félagsins. Í greiningunni er jafn­framt bent á að Icelandair hafi brugðist við aukinni sam­keppni í flugi til og frá Ís­landi með því að draga úr fram­boði í Kefla­vík um 6% á þessu ári. Sú aðlögun geti stutt við betri nýtingu og fram­legð í leiða­kerfinu. Akkur telur einnig að veru­leg tækifæri felist í endur­nýjun flota Icelandair. Gert er ráð fyrir að Boeing 757 og 767 vélarnar hverfi úr rekstri fyrir árið 2027. Sú breyting ein og sér gæti, sam­kvæmt greiningunni, bætt af­komu félagsins um 25 til 40 milljónir dala og fært Icelandair nær 8% EBIT-mark­miði stjórn­enda. Í sviðs­mynd Akkurs fyrir árið 2028 er gert ráð fyrir að tekjur Icelandair verði tæp­lega 2 milljarðar dala, EBITDA nemi 235 milljónum dala og EBITDA-fram­legð verði 12%. Þá er gert ráð fyrir að hreinar vaxta­berandi skuldir verði 1,6 sinnum EBITDA. Greiningar­fyrir­tækið bendir þó á að áhættan sé tölu­verð. Kostnaðar­grunnur Icelandair sé að hluta í ís­lenskum krónum og styrking krónunnar geti því þrýst á fram­legð. Þá sé óvissa á vinnu­markaði, meðal annars vegna kjara­viðræðna flug­manna og verk­falls­hættu meðal flug­virkja. Einnig vegi áhætta vegna elds­neytis­verðs, kol­efnis­kostnaðar og lágrar EBIT-fram­legðar áfram þungt. Akkur segir að lægra olíu­verð geti þó stutt við af­komu félagsins til skemmri tíma. Það geti vegið upp á móti veikari eftir­spurn og þrýstingi á fram­legð í leiða­kerfinu. Niður­staða Akkurs er að markaðurinn hafi of­metið áhættuna í rekstri Icelandair og van­metið mögu­legan ávinning af flota­breytingum, bættri nýtingu og lægri skuld­setningu. Upp­fært verðmat gerir því ráð fyrir að hluta­bréf félagsins eigi veru­legt rými til hækkunar frá núverandi markaðs­gengi.

Share this article