Verðbólga eykst lítillega frá síðasta mánuði. Tólf mánaða verðbólga mælist 5,3% miðað við 5,2% í síðasta mánuði. Vísitala neysluverðs miðað við verðlag í júlí hækkaði um 0,36% frá síðasta mánuði og mælist nú 693,2 stig. Án húsnæðis hækkaði hún um 0,31% og mælist 553,9 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%. Launavísitala hækkaði um 0,2% frá síðasta mánuði. Verðbólga var 5,2% í síðasta mánuði og hefur verið yfir 5% allt þetta ár. Það er rúmlega tvöfalt verðbólgumarkmið Seðlabankans, sem stefnir að því að verðbólga sé sem næst 2,5%. Hægt er að segja kjarasamningum á almennum markaði upp í haust ef verðbólga verður yfir 4,7% í ágúst. Föt og skór lækkuðu um 4,7% og húsbúnaður og heimilistæki lækkuðu um 2,4%. Hagstofan tengir það við sumarútsölur. Orkugjafar fyrir farartæki lækkuðu um 3,6%. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði hækkaði um 0,6% og flugfargjald til útlanda um 15,7%.