Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga hækkar milli mánaða

Read Full Article →

Verðbólga mældist 5,3% í júlí sam­kvæmt nýjum tölum Hag­stofu Ís­lands og hækkaði því úr 5,2% í júní. Vísi­tala neyslu­verðs hækkaði um 0,36% frá fyrri mánuði og stendur nú í 693,2 stigum. Vísi­tala neyslu­verðs án húsnæðis hækkaði um 0,31% milli mánaða og hefur hækkað um 4,8% síðastliðna tólf mánuði. Niður­staðan er lítil­lega yfir spám bankanna. Arion banki, Ís­lands­banki, Lands­bankinn og Kvika höfðu allir gert ráð fyrir að ár­s­verðbólga yrði óbreytt í 5,2%. Niður­staðan er lítil­lega yfir spám bankanna. Arion banki, Ís­lands­banki, Lands­bankinn og Kvika höfðu allir gert ráð fyrir að ár­s­verðbólga yrði óbreytt í 5,2%. Sjá einnig Verðbólga lík­legast vel yfir viðmiði kjara­samninga Flug­far­gjöld hækkuðu um tæp 16% Hækkun flug­far­gjalda til út­landa hafði mest áhrif til hækkunar vísitölunnar í júlí. Flug­far­gjöld hækkuðu um 15,7% milli mánaða og lögðu 0,48 pró­sentu­stig til hækkunar hennar. Kostnaður vegna bú­setu í eigin húsnæði, svo­kölluð reiknuð húsa­leiga, hækkaði um 0,6% og hafði 0,12 pró­sentu­stiga áhrif til hækkunar. Á móti lækkaði verð á orku­gjöfum fyrir farar­tæki, þar á meðal bensíni, dísilolíu og raf­magni, um 3,6%. Lækkunin dró vísitöluna niður um 0,1 pró­sentu­stig. Sumarútsölur höfðu einnig tölu­verð áhrif. Verð á fötum og skóm lækkaði um 4,7% og dró vísitöluna niður um 0,16 pró­sentu­stig. Hús­búnaður, heimilistæki og tengdar vörur lækkuðu um 2,4% og höfðu 0,09 pró­sentu­stiga áhrif til lækkunar. Enn yfir viðmiði kjara­samninga Verðbólga er því áfram vel yfir 4,7% verðlags­viðmiði kjara­samninga. Spár bankanna höfðu þegar bent til þess að ólík­legt væri að viðmiðið næðist á næstu mánuðum. Niður­staðan í júlí er auk þess lítil­lega óhagstæðari en þeir höfðu gert ráð fyrir. Júlímælingin er sú síðasta sem peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans fær fyrir næstu vaxtaákvörðun sína í ágúst. Hærri verðbólga en spáð var kann því að draga úr líkum á vaxtalækkun og auka þrýsting á að vextir verði annaðhvort óbreyttir eða hækkaðir. Vísi­tala neyslu­verðs í júlí gildir til verð­tryggingar í septem­ber.

Share this article