200 mílur | Morgunblaðið | 24.2.2026 | 13:30 Afstaðan ljós í atkvæðagreiðslu Fyrstu grásleppubátarnir héldu til veiða fyrir nokkru, sem er fyrr en verið hefur. Veiðarnar verða stöðvaðar verði frumvarpið að lögum. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Ég hef verið að fylgjast með þessu máli sem er þingmannamál sem snertir minn málaflokk. Málið var kallað inn til nefndar á milli 2. og 3. umræðu á Alþingi og það er rætt um einhverjar mögulegar breytingar. Ég ætla því að bíða með að láta endanlega afstöðu mína í ljós þar til í atkvæðagreiðslu um málið,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í samtali við Morgunblaðið, spurð um afstöðu sína til grásleppufrumvarpsins sem hart hefur verið deilt um á Alþingi upp á síðkastið. Var á gula takkanum Hún var spurð um afstöðu til frumvarpsins, en hún var fjarverandi sökum lasleika þegar atkvæði voru greidd um frumvarpið á Alþingi að 2. umræðu lokinni. Grásleppufrumvarpið kveður á um gjörbreytingu á gildandi lögum um grásleppuveiðar sem tóku gildi árið 2024 og verði það að lögum verður grásleppukvóti þeirra útgerða sem fengið hafa slíka úthlutun afturkallaður. Hanna Katrín var einn flutningsmanna þess frumvarps á sínum tíma en segist hafa „verið á gula takkanum“ við lokaafgreiðslu málsins á þingi og segir að það hafi verið vegna breytinga sem gerðar hafi verið við vinnslu málsins. Spurningu um hvort verið sé að vega að fiskveiðistjórnunarkerfinu með samþykkt grásleppufrumvarpsins segir Hanna Katrín að mikil dramatík felist í fullyrðingu um það. Frétt af mbl.is Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu „Fiskveiðistjórnunarkerfið okkar stóð styrkum fótum áður en kvótasetning á grásleppu fór í gegn fyrir tveimur árum og mun standa styrkum fótum áfram þótt þetta frumvarp verði að lögum. Samkvæmt frumvarpinu er verið að kalla til baka tveggja ára gamla breytingu og það stendur ekki steinn yfir steini í þeim málflutningi og þeirri fullyrðingu að í þessu felist aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu. Það er eðlilegt að þeir sem stóðu að kvótasetningunni fyrir tveimur árum séu á móti því að kvótinn sé afnuminn núna en að kalla þetta aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu í heild stenst enga skoðun,“ segir Hanna Katrín. Rétt að skoða lögmæti Fram hefur komið í umræðu á Alþingi að sérfræðingar úr stjórnarráðinu hafi eindregið ráðlagt atvinnuveganefnd að skoða lögmæti frumvarpsins m.t.t. dóma Hæstaréttar um meðalhóf og einnig stjórnarskrárbundin atvinnuréttindi sem gildandi lög veita grásleppuútgerðum. Spurð um þetta segir Hanna Katrín að sérfræðingar ráðuneytisins í þessum málaflokki hafi mætt á fund atvinnuveganefndar, svarað skriflegum spurningum sem birst hafi og í ljós hafi komið að vilji standi til þess að fá skýrara lögfræðiálit þar um, sem væri til bóta. „Það er klárlega afstaða ráðuneytisins,“ segir hún. Samþykkt var í atvinnuveganefnd fyrir fáeinum vikum að leita eftir svörum hjá Lagastofnun Háskólans við tilteknum spurningum um lögmæti tiltekinna atriða í frumvarpinu, en meirihlutinn samþykkti fyrir skemmstu að draga beiðni þar um til baka. Í framhaldinu var samþykkt að beina spurningunum til atvinnuvegaráðuneytisins sem gaf verkefnið frá sér að nokkru leyti þar sem um þingmannafrumvarp væri að ræða, en ekki stjórnarfrumvarp. Frétt af mbl.is Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Sumum spurningum svarað Spurð álits á þessari málsmeðferð segir Hanna Katrín að ráðuneytið hafi svarað nokkrum spurninganna skýrt, en ekki verið í stakk búið til að svara öðrum þar sem málið hafi ekki verið unnið í ráðuneytinu. Hún segir að einhverjar vikur hafi liðið frá því að samþykkt var í nefndinni að beina spurningum til Lagastofnunar án þess að mótaðar hugmyndir hafi komið fram þar um og því hafi meirihlutinn ákveðið að draga samþykktina til baka. „Mér skilst að ætlunin sé að bjóða mér á fund nefndarinnar og ég mun þiggja það, berist það boð,“ segir Hanna Katrín. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Verðmætasta loðnuveiðin að bresta á Munu taka mið af vatnatilskipun Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Aðeins bundnir eigin sannfæringu Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Radarinn fer aftur í loftið Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Aðeins bundnir eigin sannfæringu Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Radarinn fer aftur í loftið Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Ásökun um vanhæfi Engin aukning í loðnukvóta Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Segir orð Bergþórs valda misskilningi Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Aðeins bundnir eigin sannfæringu Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Fleira áhugavert Fordæmdi „algjöra villimennsku Rússa“ Starmer: Við erum ekki áhorfendur að fylgjast með utan frá Edition-málið sent aftur til lögreglu Sýnir hvað það þarf lítið til Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 24.2.26 665,92 kr/kg Þorskur, slægður 24.2.26 682,77 kr/kg Ýsa, óslægð 24.2.26 378,98 kr/kg Ýsa, slægð 24.2.26 384,67 kr/kg Ufsi, óslægður 24.2.26 266,23 kr/kg Ufsi, slægður 24.2.26 208,37 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Gullkarfi 23.2.26 297,91 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.2.26 26,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.2.26 Sindri BA 24 Landbeitt lína Þorskur 1.158 kg Ýsa 123 kg Samtals 1.281 kg 24.2.26 Leifur EA 888 Þorskfisknet Ufsi 870 kg Þorskur 194 kg Samtals 1.064 kg 24.2.26 Sæli ÍS 268 Lína Ýsa 4.720 kg Þorskur 1.522 kg Steinbítur 36 kg Langa 12 kg Karfi 6 kg Samtals 6.296 kg 24.2.26 Ágústa EA 16 Þorskfisknet Ufsi 383 kg Þorskur 291 kg Samtals 674 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Verðmætasta loðnuveiðin að bresta á Munu taka mið af vatnatilskipun Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Aðeins bundnir eigin sannfæringu Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Radarinn fer aftur í loftið Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Aðeins bundnir eigin sannfæringu Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Radarinn fer aftur í loftið Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Ásökun um vanhæfi Engin aukning í loðnukvóta Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Segir orð Bergþórs valda misskilningi Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Aðeins bundnir eigin sannfæringu Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Fleira áhugavert „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Mikil andstaða í umsagnarferli 40 milljarða búhnykkur Fordæmdi „algjöra villimennsku Rússa“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 24.2.26 665,92 kr/kg Þorskur, slægður 24.2.26 682,77 kr/kg Ýsa, óslægð 24.2.26 378,98 kr/kg Ýsa, slægð 24.2.26 384,67 kr/kg Ufsi, óslægður 24.2.26 266,23 kr/kg Ufsi, slægður 24.2.26 208,37 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Gullkarfi 23.2.26 297,91 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.2.26 26,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.2.26 Sindri BA 24 Landbeitt lína Þorskur 1.158 kg Ýsa 123 kg Samtals 1.281 kg 24.2.26 Leifur EA 888 Þorskfisknet Ufsi 870 kg Þorskur 194 kg Samtals 1.064 kg 24.2.26 Sæli ÍS 268 Lína Ýsa 4.720 kg Þorskur 1.522 kg Steinbítur 36 kg Langa 12 kg Karfi 6 kg Samtals 6.296 kg 24.2.26 Ágústa EA 16 Þorskfisknet Ufsi 383 kg Þorskur 291 kg Samtals 674 kg Skoða allar landanir »