Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fyrstu kaup­endur með 55% nýrra fast­eigna­lána

Read Full Article →

Um 55% nýrra fast­eigna­lána Lands­bankans á fyrstu sex mánuðum ársins voru vegna fyrstu kaupa á íbúðar­húsnæði. Meðal­fjár­hæð nýrra fast­eigna­lána bankans nam um 44 milljónum króna, sam­kvæmt upp­lýsingum sem birtar voru sam­hliða hálfsárs­upp­gjöri Lands­bankans. Lilja Björk Einars­dóttir, banka­stjóri Lands­bankans, segir hvetjandi að sjá ungt fólk fjár­festi áfram í húsnæði þrátt fyrir hátt vaxta­stig og mikla greiðslu­byrði. „Þrátt fyrir þetta er hvetjandi að sjá að ungt fólk er að fjár­festa í húsnæði og fyrsta hálfa árið eru um 55% nýrra fast­eigna­lána vegna fyrstu kaupa og meðallánið er um 44 milljónir króna,“ segir Lilja. Sjá einnig Arðsemi yfir markmiði en virðisrýrnun eykst Undanþága nýtt í meira en 5% til­vika Lands­bankinn hefur jafn­framt nýtt heimildir Seðla­bankans til að veita undanþágu frá reglum um há­mark greiðslu­byrðar­hlut­falls í meira en 5% til­vika. Reglurnar tak­marka hversu hátt hlut­fall ráðstöfunar­tekna lán­taka má fara í greiðslu­byrði fast­eigna­lána. Seðla­bankinn heimilar þó lán­veit­endum að víkja frá reglunum í tak­mörkuðum hluta nýrra útlána. Undanþágu­heimildin getur meðal annars nýst fyrstu kaup­endum sem hafa nægi­legt eigið fé en standast ekki að fullu greiðslu­byrðar­mat vegna hárra vaxta. „Við höfum nýtt vel heimildir Seðla­bankans til að veita undanþágu frá reglum um greiðslu­byrðar­hlut­fall, eða í yfir 5% til­vika,“ segir Lilja. Bjóða greiðsluþak á íbúðalán Lilja segir nauð­syn­legt að ná tökum á verðbólgunni svo vextir geti lækkað. Þangað til bjóði bankinn sveigjan­legri úrræði fyrir við­skipta­vini sem glíma við þunga greiðslu­byrði. Þar nefnir hún meðal annars nýtt greiðsluþak á íbúðalánum, sem er ætlað að tak­marka mánaðar­legar greiðslur tíma­bundið. Vaxtaálag Lands­bankans á íbúðalán miðað við megin­vexti Seðla­bankans er lægst 1,25 pró­sentu­stig fyrir óverð­tryggð lán með fasta vexti í tólf mánuði. Háir stýri­vextir þýða þó að heildar­vextir slíkra lána eru áfram háir og greiðslu­byrði nýrra kaup­enda því mun meiri en á árum þegar vaxta­stig var lægra.

Share this article