Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fyrstu kaupendur ekki fleiri um árabil

Read Full Article →

Tæp 40% undirritaðra kaupsamninga í aprílmánuði vörðuðu fyrstu fasteignakaup, samkvæmt nýbirtri mánaðarskýrslu HMS. Er það hæsta hlutfall fyrstu kaupenda sem mælst hefur innan mánaðar frá því í byrjun árs 2007. Hlutfallið hefur að meðaltali verið rúm 34% síðastliðið ár og 33% undanfarinn áratug. Í skýrslunni kemur fram að staða fyrstu kaupenda virðist standa nokkuð sterk, þrátt fyrir að fjármögnunarkostnaður fasteigna hafi verið hár um nokkurn tíma. Mynd tekin úr mánaðarskýrslu HMS Í gögnum HMS er vísað til nýlegra breytinga á reglum um veitingu hlutdeildarlána frá byrjun árs, sem gert hafi fleiri fyrstu kaupendum kleift að nýta sér úrræðið. Þá voru lánþegaskilyrði fyrstu kaupenda einnig rýmkuð í nóvember seinastliðnum, með þeim hætti að undanþáguheimild lánveitenda frá hámarki greiðslubyrðarhlutfalls var hækkuð úr 5% í 10% af heildarfjárhæð veittra lána. Breyting þessi kom í kjölfar ákvörðunar fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans um hækkun hámarksveðsetningarhlutfalls fyrstu kaupenda úr 85% í 90%. Gögn HMS benda þó á að undanþáguheimildir þessar hafi lítið verið nýttar, eða einungis um fjórðung af leyfilegu hámarki hjá bönkum og lífeyrissjóðum. Takmörkuð nýting bendi jafnframt til þess, að svigrúm í skilyrðum Seðlabankans skili sér ekki sjálfkrafa í auknu aðgengi kaupenda að lánsfjármögnun. „Við hátt vaxtastig getur greiðslubyrði orðið það þung að lánveitendur telji ekki forsvaranlegt að veita lán, jafnvel þótt heimild sé til að víkja frá hámarki greiðslubyrðarhlutfalls.” Jafnframt er vísað til þess að önnur rýmkun lánþegaskilyrða hafi nýst fyrstu kaupendum með betri hætti en undanþága frá hámarki greiðslubyrðarhlutfalls. Afturhvarf til 90% hámarksveðsetningarhlutfalls fyrir fyrstu kaupendur hafi þegar nýst hluta fyrstu kaupenda, hvort heldur sem um ræði kaupendur sem skorti eigið fé til útborgunar, eða kaupendur sem hafi nú möguleika á hærri lántöku.

Share this article