Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nöfn meistara í heila öld birt á einu bretti

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.7.2026 | 16:14 Nöfn meistara í heila öld birt á einu bretti Gunnar Páll Jóakimsson og Hafsteinn Óskarsson í ÍR-heimilinu. mbl.is/Hákon Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Meistaramót Íslands (MÍ) í frjálsum íþróttum hefst á ÍR-vellinum í dag og stendur fram á sunnudag. Nú eru mikil tímamót því MÍ fer fram í 100. skiptið. Af því tilefni hefur sögunefnd FRÍ gramsað í sögu mótsins og verður boðið upp á sýningu í húsakynnum ÍR meðfram mótshaldinu. „Fyrsta meistaramótið fór fram árið 1927 og við ætlum að birta nöfn allra Íslandsmeistara í öllum greinum frá 1927 til dagsins í dag á vegg. Þetta er löng saga og þarna getur fólk séð nöfn foreldra sinna eða ömmu og afa,“ segir Gunnar Páll Jóakimsson, sem ásamt Hafsteini Óskarssyni og fleirum stendur að sýningunni. „Við sýnum auk þess ljósmyndir frá ýmsum tímabilum. Þar á meðal eru gamlar myndir og við erum með myndir af öllum Íslandsmeisturunum á fyrsta mótinu 1927. Við erum því með gott úrval af myndum úr þessari tæplega 100 ára sögu. Einnig sýnum við eitthvað af myndböndum frá nokkrum gömlum meistaramótum.“ Ágúst vann grunninn Gunnar Páll var kunnur hlaupari á sínum tíma og margfaldur Íslandsmeistari en síðar var hann farsæll þjálfari afreksfólks. Á 75 ára afmæli Frjálsíþróttasambandsins var hann ásamt fleirum í sögunefnd þegar saga FRÍ var rituð af því tilefni. Þá tók gamall keppinautur hans af hlaupabrautinni, og blaðamaður Morgunblaðsins um árabil, Ágúst Ásgeirsson, saman nöfn allra Íslandsmeistara frá upphafi. Nú nýtist sú vinna og Friðrik Þór Óskarsson, tölvunarfræðingur og gamall landsliðsmaður, vinnur frekar með upplýsingarnar að sögn Gunnars. „Ágúst vann grunninn að þessari vinnu varðandi meistaratalið. Auk þess er ýmis fróðleikur til um mótsmet og hverjir hafa lengst átt slík met og svo framvegis. Friðrik Þór Óskarsson er að vinna í að gera meistaratalið gagnvirkt. Meistaratalið verður þá á tölvutæku formi og hægt að ýta á hvert nafn fyrir sig til að fá upp frekari fróðleik um viðkomandi afreksmann. Við munum kynna það betur á sýningunni.“ Mótið féll aldrei niður Merkilegt má telja að MÍ skuli aldrei hafa fallið niður í þessi 100 skipti. Ýmislegt gengur á þegar um svo langan tíma er að ræða. Smotterí eins og síðari heimsstyrjöldin eða heimsfaraldur til að nefna eitthvað. ÍR-ingurinn Vala Flosadóttir í stangarstökkinu á síðasta MÍ á síðustu öld. Ári síðar vann hún til verðlauna á Ólympíuleikunum í Sydney. „Það komu ár þar sem eitthvað kom upp á og þá var mótinu ef til vill frestað en það féll ekki niður. Í einhverjum tilfellum hefur mótið ef til vill verið fámennara en ella. Þessi langa saga mótsins er því samfelld,“ segir Gunnar og neitar því ekki að þessi tímamót séu stór í hugum þeirra sem hafa lifað og hrærst í frjálsum íþróttum. „Já, þetta er það. Við höfum unnið að ýmsum málum nokkuð lengi og þegar tímamót eins og þessi eru þá verður aukið átak í því að varðveita söguna. Stór tímamót eru því eins og góð hvatning. Við munum halda vinnunni áfram því endalaust er hægt að finna tilefni til að framreiða efni úr gagnagrunninum og það verður auðveldara þegar tölvugrunnurinn er orðinn eins góður og Friðrik er að vinna í.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sá besti þarf að fara í aðgerð Nöfn meistara í heila öld birt á einu bretti Heimsækir Trump í sjöunda sinn Gjaldþrotum fjölgar á milli ára LeBron James á leið til Philadelphiu Umræðan Krafa um sanngjarnar leikreglur Stigmögnunarhættan vegna Pútíns Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málarar með tárin í augunum í vætunni Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Mikill styrkur í sjálfstæðinu fyrir Ísland Íslensk stjórnvöld setji stopp á nýja menntatækni Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Átti bágt með að trúa eigin augum Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Mistök Vísis og þrettán daga þögn Mótorhjólaslys í Kópavogi Talið að bifhjólinu hafi verið ekið utan í vegrið Byggja upp fjarskiptainnviði til bráðabirgða Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi „Þetta fólk er vont“ Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum „Tommi og Jenni“ í lifanda lífi á Framnesvegi Myndskeið: Braut bílrúðu með hamri Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Nýjast á mbl.is » Sá besti þarf að fara í aðgerð Nöfn meistara í heila öld birt á einu bretti Heimsækir Trump í sjöunda sinn Gjaldþrotum fjölgar á milli ára LeBron James á leið til Philadelphiu Umræðan Krafa um sanngjarnar leikreglur Stigmögnunarhættan vegna Pútíns Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýtt innflutningsgjald í bígerð Eldur í smáhýsi úti á Granda Íslensk stjórnvöld setji stopp á nýja menntatækni Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Átti bágt með að trúa eigin augum Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Mistök Vísis og þrettán daga þögn Mótorhjólaslys í Kópavogi Talið að bifhjólinu hafi verið ekið utan í vegrið Byggja upp fjarskiptainnviði til bráðabirgða Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi „Þetta fólk er vont“ Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum „Tommi og Jenni“ í lifanda lífi á Framnesvegi Myndskeið: Braut bílrúðu með hamri Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal

Share this article