Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Carney herðir tóninn gagnvart Washington

Read Full Article →

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, segir stjórnvöld reiðubúin að grípa til gagnráðstafana ef viðskiptaviðræður við Bandaríkin bera ekki árangur áður en nýir bandarískir tollar taka gildi 19. ágúst. Frá þessu greinir BBC. Carney sagði eftir fund með leiðtogum kanadískra fylkja og sjálfstjórnarsvæða að „allt væri á borðinu“ eftir því hvernig viðræðunum við Washington reiddi af. Hann vildi ekki útskýra hvaða aðgerðir kæmu helst til greina en sagði stjórnvöld hafa fjölbreytt úrræði til að bregðast við. Stjórnvöld í Washington tilkynntu fyrr í vikunni um 50% innflutningstolla á kanadískar vörur að verðmæti um 20 milljarða kanadadala. Trump-stjórnin hefur réttlætt aðgerðirnar með því að Kanada mismuni bandarískum bifreiðum, mjólkurvörum og áfengi. Carney sagði að samningaviðræður ríkjanna hefðu tekið kipp eftir tilkynningu Bandaríkjanna og að fresturinn til 19. ágúst skapaði bæði þrýsting og tækifæri til að ná samkomulagi áður en nýir tollar taka gildi. Hann sagði jafnframt að kanadísk stjórnvöld myndu halda áfram að styðja þau fyrirtæki og atvinnugreinar sem yrðu fyrir mestum áhrifum tollanna, ásamt því að auka viðskipti við önnur ríki til að draga úr vægi bandaríska markaðarins á viðskipti landsins. Tolladeilan kemur á sama tíma og viðræður um endurskoðun fríverslunarsamnings Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó hafa gengið hægar en vonir stóðu til.

Share this article