Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Carney lokkar fjárfesta til Kanada

Read Full Article →

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, bauð um hundrað sjóðstjórum frá 25 löndum til fundar í Toronto í vikunni til að sannfæra þá um að Kanada sé rétti staðurinn fyrir fjárfestingar þeirra. Á vef New York Times segir að fundurinn hafi farið fram í kjölfar þess að viðræður um viðskiptasamning við ríkisstjórn Donalds Trumps sigldu í strand í síðasta mánuði. Bandaríkin lögðu þá 50% tolla á útfluttar kanadískar vörur að verðmæti 20 milljarða dala. Kanada svaraði í sömu mynt með eigin tollum á bandarískar vörur og setti jafnframt bann við innflutningi á tilteknum vörum frá Bandaríkjunum. Sjá einnig Trump hótar að loka á Bombardier Trump hefur síðan ítrekað kröfu sína um að Kanada verði 51. ríki Bandaríkjanna og jafnframt reitt Kanadamenn til reiði með frekari landfræðilegum nafnabreytingum. Mélanie Joly, iðnaðarráðherra Kanada, segir að þjóðin geti boðið upp á nokkuð sem fá önnur lönd geti boðið: stöðugleika og traust. Hún vísar meðal annars til könnunar Global Infrastructure Association þar sem Kanada er nú í fyrsta sæti yfir eftirsóknarverðustu markaði heims fyrir innviðafjárfestingar. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem Kanada tekur fram úr Bandaríkjunum og Þýskalandi á þeim lista. Carney hefur sett markið hátt og stefnir að einni billjón dala í erlendum fjárfestingum á fimm árum. Hann hefur ítrekað sagt að féð eigi að renna til þjóðaruppbyggingar sem geri Kanada minna háð Bandaríkjunum.

Share this article