Forseti FIFA, Gianni Infantino, hefur svarað gagnrýni á heimsmeistaramótið í knattspyrnu í sumar af mikilli hörku í ítarlegri færslu á Instagram sem spannar um 15 blaðsíður. Þar sakar hann gagnrýnendur um að dreifa neikvæðni, hatri og ósönnum fullyrðingum í stað þess að njóta þess sem mótið hafi upp á að bjóða. Infantino segir að margir hafi misst af því sem skipti mestu máli á mótinu – fallegum fótbolta, sterkum tilfinningum, hátíðarstemningu, hlátri, tárum og gleði – vegna þess að þeir hafi verið of uppteknir af gagnrýni og neikvæðni. Hann beinir einnig spjótum sínum að fjölmiðlafólki og öðrum álitsgjöfum sem hann telur hafa gagnrýnt mótið án þess að taka þátt í framkvæmd þess. Að hans sögn sitji þeir bak við tölvuskjái og skrifborð og dreifi röngum sögum og hatri, á meðan starfsfólk FIFA vinni á vettvangi að skipulagningu mótsins og leggi sig fram um að skapa það sem hann kallar besta íþróttaviðburð heims. Í færslunni ver Infantino jafnframt umdeilda ákvörðun FIFA um að aflétta leikbanni bandaríska framherjans Folarins Balogun. Fjölmiðlar hafa greint frá því að Donald Trump hafi haft persónulegt samband við Infantino áður en ákvörðunin var tekin. Infantino segir að umdeild dómgæsla og leikbönn sé ekkert nýtt í fótboltanum. Að hans mati séu umdeild gul og rauð spjöld, sem og ákvarðanir um að sleppa leikmönnum við frekara bann, algeng fyrirbæri í mörgum af stærstu deildum heims og því ekki óvenjuleg í þessu samhengi.