Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur gefið út yfirlýsingu þar sem það fordæmir skipulagða ófrægingarherferð gegn stjórn þess og ekki síst forsetanum Gianni Infantino. Infantino liggur enn undir ámæli fyrir þá hugmynd að selja einkafyrirtækjum hlut í keppnum sambandsins, sem hætt hefur verið við. Kallað hefur verið eftir afsögn Infantinos og á föstudag birti The Telegram ásakanir um að hann hefði tryggt ástmey sinni háar fjárhæðir meðan hann starfaði hjá Knattspyrnusambandi Evrópu frá 2009 til 2016, án þess að geta heimildarmanna. Hún hafi verið starfsmaður UEFA og fengið greiðslurnar við starfslok. Sambandið staðfesti það við AFP og að einnig hefði verið greitt fyrir MBA-námskeið hennar. Í yfirlýsingu FIFA segir að nýlegur fréttaflutningur innihaldi órökstuddar fullyrðingar og rangar upplýsingar um sambandið og forseta þess. Sambandið kveðst fagna eðlilegri gagnrýni en muni verjast öllum rangfærslum og tilbúningi. Infantino er einn í framboði í forsetakosningum FIFA í mars. Evrópska knattspyrnusambandið hefur ítrekað hótað að sniðganga heimsmeistaramótið og segir ekki nóg að hætt hafi verið við hugmyndir Infantinos.