Martyn Ziegler, yfiríþróttafréttamaður hjá The Times og The Sunday Times, hefur varpað ljósi á hvernig hann kom upp um áætlanir Gianni Infantino , forseta FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, að selja hluta af heimsmeistaramótinu í knattspyrnu til einkafjárfesta. Einn traustur heimildarmaður hafi leitt til einnar stærstu afhjúpunar ársins í íþróttafréttum. Ziegler segir að traustur heimildarmaður hafi haft samband við hann og sýnt honum skjöl um áætlanir Infantino sem fólu í sér stofnun dótturfyrirtækis sem Infantino myndi stjórna og með því græða háar fjárhæðir sjálfur. Við hafi tekið mikil rannsóknarvinna sem leitt hafi í ljós að fjárfestingarfyrirtækið Thrive Capital var einn aðalfjárfesta ásamt Greg Maffei sem er póltískur styrktaraðili Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Tengsl voru því á milli Infantino og Trump. Áætlanir Infantino mættu mikilli gagnrýni eftir að þær voru opinberaðar. Fréttin fór í loftið á þriðjudegi en á föstudegi hafði Infantino dregið áætlanir sínar til baka. Sögunni er þó enn ekki lokið þar sem Evrópska knattspyrnusambandið UEFA hefur ítrekað að það muni sniðganga heimsmeistaramótið þar sem skilyrðum þeirra hafi ekki verið fullnægt. Þau fela meðal annars í sér að falla verði frá áformunum, sem þegar hefur gerst, en einnig að komið verði í veg fyrir að slíkar tilraunir verði ekki gerðar aftur. Skilja má þau skilyrði sem svo þau feli mögulega í sér afsögn Infantino. Hinn svissneski Infantino hefur verið forseti hjá FIFA síðan árið 2016 og sækist eftir endurkjöri á næsta ári. Stór hópur knattspyrnusamtaka ýmissa þjóða hefur dregið stuðning sinn við hann til baka.