Innlent | Morgunblaðið | 28.7.2026 | 9:55 Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Vandi fylgir vegsemd hverri og óöfundsvert að bera ábyrgð á hlutlausum upplýsingum í hitamáli. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Kristrún: „Risastórt vandamál“ Mikil ásókn í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Af hverju taka við löstunum líka? Landskjörstjórn hafnaði Heimssýn Þegar Ísland sótti ekki um » Fleiri tengdar fréttir Upplýsingar landskjörstjórnar um efni þjóðaratkvæðagreiðslunnar standast ekki alls staðar þá kröfu að kjósendum sé gerð skýr og hlutlaus grein fyrir því sem þeir eiga að ákveða. Sumar skýringar eru ónákvæmar, aðrar skortir samhengi og túlkun svarkostanna er hæpin. Hér er þó ekki helst við landskjörstjórn að sakast, því ráðherrar hafa með yfirlýsingum í raun breytt ferlinu sem skilgreint var í þingsályktuninni og meðförum Alþingis. Það var kynnt sem tveggja þrepa ferli, en svo er ekki lengur og fyrir því er engin grein gerð á vef landskjörstjórnar, kosningar.is. Á upplýsingavefnum eiga kjósendur í þessu hitamáli að geta gengið að hlutlausum grundvallarupplýsingum á einum stað. Textinn var unninn af Lagastofnun Háskóla Íslands fyrir landskjörstjórn, margt er þar skýrt og flest rétt, svo langt sem það nær. En þetta er vandmeðfarið verkefni, nánast óleysanlegt svo öllum líki, sérstaklega þó eftir að ráðherrar bæta við nýjum fyrirvörum við ferlið. En hún hefði a.m.k. átt að gera grein fyrir því. Frétt af mbl.is Óvissa um afleiðingar atkvæða Hvorki já né nei fullskýrt Stærsti agnúinn er sá að hvorki „já“ né „nei“ í atkvæðagreiðslunni hefur skýrar og fyrirsjáanlegar afleiðingar, eins og Feneyjanefnd Evrópuráðsins segir að sé eitt frumskilyrði hennar. Afleiðingar „neis“ eru sagðar að viðræður hefjist ekki á ný, sem er rétt, en þá er óvíst hvað verður um aðildarumsóknina frá 2009. Verður hún formlega afturkölluð eða látin liggja, svo megi taka þráðinn upp án nýrrar umsóknar? Forsætisráðherra sagði í viðtali við Morgunblaðið 26. mars að ríkisstjórnin hefði ekkert rætt málið og treysti sér ekki til að fullyrða um „þetta tæknilega atriði“. Afleiðingar „jás“ eru enn óljósari. Ferlið var upphaflega kynnt sem tveggja þrepa, fyrst yrði þjóðin beðin um heimild til aðildarviðræðna, en fengist hún þá yrði þjóðin í fyllingu tímans spurð um fyrirliggjandi aðildarsamning. Þetta er hið „tveggja þrepa“ fyrirkomulag, að þjóðin ráði tvisvar. Forsætisráðherra hefur hins vegar sagt á Alþingi, fyrir utanríkismálanefnd og í viðtölum að hún muni sjálf meta samninginn og ekki leggja hann fyrir þjóðina nema sér lítist á hann. Ekki liggur fyrir á hverju það mat eigi að byggjast. Þetta er ekki lögbundið neitunarvald forsætisráðherra, heldur aðeins pólitískt mat. Hvorki þingsályktunin, greinargerð meirihlutans né málflutningur ráðherra og stjórnarliða við þingmeðferðina gerðu ráð fyrir þessu millistigi. Landskjörstjórn getur þess í engu á upplýsingavef sínum. Utanríkisráðherra hefur í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins sett annan fyrirvara framar í ferlið: „Stjórnvöld myndu aldrei ljúka viðræðum nema fyrir lægi samningur sem tryggi hagsmuni Íslands.“ Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur tekið í sama streng og sagt að stjórnarflokkarnir leggi ekki „vonlausan samning“ fyrir þjóðina. Þetta kann að vera skiljanleg afstaða ráðherranna. Hún breytir eigi að síður forsendunni um tveggja þrepa kerfi. Allt í einu hafa tveir ráðherrar áskilið sér rétt til þess að stíga þar inn á milli, svo óvíst er að kosið verði öðru sinni. Já þýðir sem sagt ekki að menn fái að sjá! Nei þýðir nei, já kannski Túlkun landskjörstjórnar á svarkostunum er einnig ósamhverf. Á vefnum segir að nei-kjósandi sé að segja að Ísland eigi ekki að gerast aðildarríki, „a.m.k. ekki að sinni“. Já-kjósandi sé hins vegar „ekki endilega“ að segja að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Formlega er rétt að kosið sé um viðræður en ekki aðild. Túlkunin hefur samt pólitískt gildi þegar nei er aðeins tengt afstöðu gegn aðild, en já látið rúma bæði aðildarsinna og óvissa. Sú túlkun fellur að kjarnaboðskap hreyfingarinnar Já til að sjá eins og flís við rass: að þeir sem ekki hafa gert upp hug sinn eigi að kjósa já til þess að sjá hvað bjóðist. Þar er landskjörstjórn komin út á ystu nöf, ef ekki fram af henni. Ekki áfram á sama stað Upphaflega skjalið bendir einnig á orðalagið „hefja á ný“. Á vefnum segir að kjósandi þurfi ekki að taka afstöðu til þess hvort um framhald fyrri viðræðna eða nýtt ferli yrði að ræða. Sá greinarmunur hefur þó þýðingu. Af 35 samningsköflum höfðu 27 verið opnaðir og 11 lokað til bráðabirgða þegar viðræðurnar stöðvuðust. Engum kafla var lokað endanlega. Í aðildarferlinu gildir að ekkert er samþykkt fyrr en allt er samþykkt. Regluverk ESB hefur breyst frá 2013, svo framkvæmdastjórnin þyrfti að meta stöðuna, ráðið að ákveða opnun og bráðabirgðalokun kafla og aðildarríkin að samþykkja framvinduna. Fyrri vinna gæti nýst, en ekki verður einfaldlega haldið áfram þar sem frá var horfið. Samningssvigrúm og tími Vefurinn leggur talsverða áherslu á sérlausnir, undanþágur og aðlögunarfresti. Slíkt getur samist um, en reglusafninu er gefinn minni gaumur. Er þó ljóst að reglusafn ESB er ekki samningsatriði við inngöngu. Viðræðurnar snúast fyrst og fremst um hvernig og hvenær umsóknarríkið tekur það upp. EES-aðildin veitir Íslandi forskot, en sú staðreynd að 21 af 35 köflum falli að hluta eða öllu leyti undir EES segir lítið um umfang álitamálanna. Og EES-undanþágur veita engin fordæmi. Áætlun stjórnvalda um 12-24 mánaða aðildarviðræður, sem mörgum finnst bjartsýni, er tínd til og nefnd dæmi frá fyrri viðræðum á liðinni öld. Tekið er fram að tíminn sé óviss, en síður hversu mjög hann ræðst af framkvæmdastjórninni, ráðinu, öllum aðildarríkjunum og breyttu regluverki. Þær tímaáætlanir eru pólitískar vonir og væntingar, ekki borðleggjandi staðreyndir. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Kristrún: „Risastórt vandamál“ Mikil ásókn í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Af hverju taka við löstunum líka? Landskjörstjórn hafnaði Heimssýn Þegar Ísland sótti ekki um » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Dortmund sækir vonarstjörnu Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Grunaður um alvarlega líkamsárás Freyr slær í gegn: „Besti þjálfari í heimi“ Byggingar hrundu og nokkrir slasaðir Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meginþorri umsókna renni í gegn Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Upplýsingagjöf hefði mátt vera betri Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Meginþorri umsókna renni í gegn Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Skýjað, skúrir og hellidembur Óvissa um afleiðingar atkvæða „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Segir nýjan veg ekki skemma Landmannalaugar Átti eina fótboltann í þorpinu um tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Nýjast á mbl.is » Dortmund sækir vonarstjörnu Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Grunaður um alvarlega líkamsárás Freyr slær í gegn: „Besti þjálfari í heimi“ Byggingar hrundu og nokkrir slasaðir Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mestu skógareldar í sögu Spánar Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Meginþorri umsókna renni í gegn Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Skýjað, skúrir og hellidembur Óvissa um afleiðingar atkvæða „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Segir nýjan veg ekki skemma Landmannalaugar Átti eina fótboltann í þorpinu um tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég