Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fimm milljarðar í húfi fyrir KSÍ fáist samþykki fyrir áformum Infantino

Read Full Article →

Öllum 211 aðildarsamböndum alþjóða knattspyrnusambandsins FIFA hefur borist bréf þess efnis að fari það svo að þau samþykki áform Gianni Infantino, forseta sambandsins, að þá fái þau um 40 milljónir Bandaríkjadala eða um fimm milljarða íslenskra króna. KSÍ er eitt þessara aðildarsambanda og hefur KSÍ fengið frest til 19. september til að samþykkja. Málið sem um ræðir er stofnun dótturfélagsins FIFA Forward Enterprise, nýtt félag sem metið er á tuttugu milljarða Bandaríkjadala og er ætlað að halda utan um viðskipta- og mótahaldsstarfsemi FIFA, þar á meðal HM. Ætlunin er að selja 20% hlut í félaginu, en með þessu er fjárfestum hleypt að borðinu og er talið að Joshua Kushner komi til með að leiða þann fjárfestingarhóp. Bróðir hans, Jared Kushner er giftur Ivonku Trump og er hann því bróðir tengdasonar Donald Trump Bandaríkjaforseta. Of snemmt að taka afstöðu - Neyðarfundur á morgun Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, fer á neyðarfund UEFA á morgun. Hann svarar Vísi skriflega í dag um að of litlar upplýsingar séu á borðinu til að hægt sé að taka afstöðu til málsins. „Akkúrat núna liggja ekki fyrir nægar upplýsingar um útfærslu á hugmynd FIFA og því of snemmt að segja til um nokkra afstöðu. FIFA mun væntanlega kynna málið vel fyrir samböndunum, því eins og hefur komið fram er framkvæmdin og útfærslan háð samþykki aðildarlanda FIFA," segir Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis . Í yfirlýsingu UEFA í gær segir að ekkert gagnsæi fylgi því hverjir hagnist á sölu innviða FIFA. Greint er þó frá því að Infantino gæti hagnast gríðarlega fari það svo að FFE verði að veruleika en hann mun verða hátt settur innan félagsins þegar stjórnunartíð hans hjá FIFA lýkur árið 2031.

Share this article