Fyrirætlanir Giannis Infantinos og FIFA eru harðlega gagnrýndar. Í yfirlýsingu FIFA í morgun kom fram rangfærslur fjölmiðla hefðu ýtt undir neikvæða umfjöllun og gagnrýni. Þar kom einnig fram að FIFA stefndi áfram að sölu hlutar í HM. Knattspyrnusamband Mið- og Norður-Ameríku og asíska knattspyrnusambandið hafa lýst því yfir að aðildarsambönd þeirra muni kjósa gegn tillögunni. KSÍ styður afstöðu UEFA um að sniðganga FIFA, verði þetta að veruleika. „Það voru öll 55 samböndin mætt ásamt formönnum og framkvæmdastjórum. Þar voru allir sammála. Það var mikil samstaða um þetta mál. Menn tjáðu sig um þau vinnubrögð sem hafa verið hjá FIFA og þá starfshætti sem hafa verið. Menn eru ekki ánægðir með það og vilja stíga fast til jarðar.“ Stjórn KSÍ fundaði í morgun um áform FIFA um að selja einkaaðilum hlut í heimsmeistaramótinu í fótbolta. Þar var rætt um afstöðu Evrópska knattspyrnusambandsins sem ætlar að sniðganga öll mót FIFA nái áformin fram að ganga. Áformin hafi komið flatt upp á fólk í knattspyrnuheiminum. „Þeir sem sitja í stjórn FIFA fyrir hönd UEFA höfðu enga vitneskju um þessi mál. Við hin sem ekki sitjum í þessari stjórn fengum bréf í vikunni og komum alveg af fjöllum.“ KSÍ alfarið á móti Þorvaldur segir málið ekki bara snúast um peninga. „Allur sá peningur sem kemur inn í FIFA er náttúrlega eign þeirra 211 þjóða sem eru í sambandinu. Þetta snýst ekki endilega um peninga og annað. Menn verða líka að hafa stjórnarhættina í lagi. Ég held að við viljum ekki sjá fyrirtæki og fjárfestingar stjórna því hvar HM er eða hvernig FIFA er stjórnað. Við setjum okkur algjörlega upp á móti þessari hugmynd.“ Fram undan eru tveir leikir hjá kvennalandsliðinu í haust í undankeppni HM. Hefur þessi ákvörðun áhrif á þá? „Það eru hlutir sem við verðum að fylgjast með. Eins og staðan er núna stefnum við bara á að spila þá leiki. Við sjáum hvaða viðbrögð verða á næstu dögum.“