Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Afstaða KSÍ gagnvart áformum Infantino skýr

Read Full Article →

Fyrirætlanir Giannis Infantino og FIFA hafa verið harðlega gagnrýndar. FIFA sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem kom fram að umfjöllun og rangfærslur fjölmiðla hefðu ýtt undir neikvæða umfjöllun og gagnrýni. Þar kom einnig fram að FIFA ætlaði sér að stefna áfram að sölu hlutarins í HM. Bæði Knattspyrnusamband Mið- og Norður-Ameríku sem og asíska knattspyrnusambandið hafa gefið út að aðildarsambönd þeirra myndu kjósa gegn tillögunni. KSÍ styður afstöðu UEFA um að sniðganga FIFA, verði þetta að veruleika. „Það voru öll 55 samböndin mætt ásamt formönnum og framkvæmdastjórum. Þar voru allir sammála. Það var mikil samstaða um þetta mál. Menn tjáðu sig um þau vinnubrögð sem hafa verið hjá FIFA og þá starfshætti sem hafa verið. Menn eru ekki ánægðir með það og vilja stíga fast niður til jarðar.“ Stjórn KSÍ fundaði í morgun um áform FIFA um að selja hlut í heimsmeistaramótinu í fótbolta til einkaaðila. Þar var rætt um afstöðu UEFA til málsins. Evrópa muni sniðganga öll mót FIFA nái þetta fram að ganga. Þá hafi þessi áform komið flatt upp á fólk í knattspyrnuheiminum. „Þeir aðilar sem sitja í stjórn FIFA fyrir hönd UEFA höfðu enga vitneskju um þessi mál. Við hin sem ekki sitjum í þessari stjórn fengum bréf í vikunni og komum alveg af fjöllum.“ KSÍ alfarið á móti Þorvaldur segir málið ekki snúast bara um peninga. „Allur sá peningur sem kemur inn í FIFA er náttúrlega eign þeirra 211 þjóða sem eru í sambandinu. Þetta snýst ekki endilega um peninga og annað. Menn verða líka að hafa stjórnarhættina í lagi. Ég held að við viljum ekki sjá fyrirtæki og fjárfestingar stjórna því hvar HM er eða hvernig FIFA er stjórnað. Við setjum okkur algjörlega upp á móti þessari hugmynd.“ Fram undan eru tveir leikir hjá kvennalandsliðinu í haust í undankeppni HM. Mun þessi ákvörðun hafa áhrif á þá? „Það eru hlutir sem við verðum að fylgjast með. Eins og staðan er núna stefnum við bara á að spila þá leiki. Við sjáum hvaða viðbrögð verða á næstu dögum.“

Share this article