Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Alvotech þýtur upp

Read Full Article →

Gengi Alvotech hefur hækkað um rúm 16% í dag en gengið tók kipp eftir tilkynningu félagsins um að lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefði formlega lokið úttkt á framleiðsluaðstöðu líftæknifyrirtækisins sem fram fór í maí síðastliðnum án frekari athugasemda. Lisa Graver, forstjóri Alvotech, segir í tilkynningunni að niðurstaðan fullvissi fyrirtækið um að þær aðgerðir sem gripið hafi verið til svari fyllilega þeim athugasemdum FDA sem fram komu í úttektinni. Sjá einnig FDA lýkur út­tekt hjá Al­vot­ech án frekari at­huga­semda Félagið vinni nú áfram að því að fá samþykki fyrir þeim umsóknum um markaðsleyfi í Bandaríkjunum sem við það hefur inn til umsagnar, þ.e. hliðstæðum við Simponi, Eylea og Entyvio. Gengi Alvotech stóð í 389 krónum á hlut við lokun markaða í gær og hafði þá ekki verið lægra síðan í byrjun júní. Gengið tók stökk í kjölfar þess að félagið birti ofangreinda tilkynningu og fór hæst upp í 453 krónur á hlut. Hlutabréfaverð Alvotech stendur í 446 krónum þegar fréttin er skrifuð. Gengið félagsins hefur þó lækkað 28,6% það sem af er ári.

Share this article