Hlutabréfaverð Alvotech hefur hækkað um 5,8% í fyrstu viðskiptum eftir opnun Kauphallarinnar og stendur í 392 krónum á hlut. Til samanburðar stóð gengi líftæknifyrirtækisins í 370,5 krónum við lokun markaða í gær og hafði þá aldrei verið lægra. Alvotech tilkynnti í morgun um að það hefði lagt inn að nýju til Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) umsóknir um leyfi til markaðssetningar í Bandaríkjunum á hliðstæðum við líftæknilyfin Simponi, Simponi Aria (AVT05) og Eylea 2 mg (AVT06). Sjá einnig Leggja aftur inn umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum Félagið segist hafa sent inn ítarlegt svar við athugasemdabréfi FDA tengt úttekt á framleiðsluaðstöðu félagsins síðastliðið sumar, auk þess sem að það hafi svarað þeim athugasemdum FDA sem bárust í kjölfar reglubundinnar úttektar á cGMP-framleiðsluleyfi félagsins sem fram fór í byrjun maí sl. „Eins og áður hefur komið fram teljum við að niðurstaða úttektarinnar í maí undirstriki að framleiðsluaðstaða félagsins stenst ítrustu kröfur sem gerðar eru til cGMP lyfjaframleiðslum,“ sagði Lisa Graver, forstjóri Alvotech. Hlutabréfaverð augnlyfjaþróunarfélagsins Oculis hefur einnig hækkað um 3,5% í fyrstu viðskiptum í dag og stendur í 1.600 krónum þegar fréttin er skrifuð. Gengi Oculis er þó enn um 56% lægra en dagslokagengi þess á föstudaginn, rétt áður en félagið tilkynnti um niðurstöður rannsókna á virkni augndropa sem ollu miklum vonbrigðum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um meira en eitt prósent frá opnun Kauphallarinnar. Sextán af 27 félögum aðalmarkaðarins hafa hækkað, þar ellefu um meira en 1%, og eitt lækkað.