Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stýrivextir óbreyttir hjá Englandsbanka

Read Full Article →

Peningastefnunefnd Englandsbanka, seðlabanka Bretlands, hefur ákveðið að halda stýrivöxtum í landinu óbreyttum í 3,75%. Þrír af níu nefndarmönnum greiddu hins vegar atkvæði með 0,25 prósentustiga hækkun. Þetta er fimmta vaxtaákvörðun bankans í röð þar sem stýrivöxtum er haldið óbreyttum. Ákvörðunin er í samræmi við væntingar hagfræðinga. Verðbólga í Bretlandi dróst saman meira en greiningaraðilar áttu von á í júní og mældist 2,6% þrátt fyrir hækkun olíu- og gasverðs. Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að enn sé óljóst hversu mikil áhrif hærra orkuverð muni hafa á breska hagkerfið. Nefndin bendir á að peningastefnan hafi ekki áhrif á verð á alþjóðlegum orkumörkuðum. Peningastefnan þurfi hins vegar að taka mið af því að hagkerfið aðlagist breytingum á olíu og gasverði þannig að verðbólga leiti í 2% verðbólgumarkmið bankans með sjálfbærum hætti. Nefndin segir að gert séráð fyrir að verðbólga mun aukast síðar á árinu vegna áhrifa hærra orkuverðs. Hættan á annarrar umferðar áhrifum á verð- og launahækkanir aukist eftir því sem hærra orkuverð varir lengur. Enn sem komið séu hins vegar litlar vísbendingar um slík áhrif.

Share this article