Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Óbreyttir vextir en tveir nefndarmenn vildu hækka

Read Full Article →

Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, tilkynnti í hádeginu um að peningastefnunefnd bankans hefði ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 3,75%. Þetta er fjórða vaxtaákvörðunin í röð þar sem vöxtum bankans er haldið óbreyttum. Tveir af níu nefndarmönnum peningastefnunefndar greiddi hins vegar atkvæði gegn tillögu um óbreytta vexti og hefðu fremur viljað hækka stýrivexti um 25 punkta. Í yfirlýsingu nefndarinnar er vakin athygli á því að orkuverð á heimsvísu - sem hækkaði verulega fyrr í ár vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum - hafi lækkað frá fyrri fundi nefndarinnar. Aftur á móti séu orkuverð enn hærri en áður stríðið í Íran hófst. Heimsmarkaðsverð Brent-hráolíu hefur lækkað talsvert síðustu daga og stendur í 78,5 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Nefndin segir að peningastefna bankans hafi ekki áhrif á orkuverð á alþjóðamörkuðum en hún geti þó stuðlað að efnahagslegri aðlögun að breyttum aðstæðum þannig að verðbólga hjaðni niður í 2% verðbólgumarkmið með sjálfbærum hætti. Verðbólga í Bretlandi mældist 2,8% í maí. Nefndin segir að gert sé þó ráð fyrir að verðbólga muni aukast síðar á árinu vegna áhrifa hærra orkuverðs. Hættan á seinni umferðar áhrifum vegna hækka á olíu- og gasverði aukist sífellt eftir því hve lengi orkuverð helst hátt. Aftur á móti séu merki um kólnandi hagkerfi og vinnumarkað sem geti dregið úr verðbólguþrýstingi.

Share this article