Innlent | mbl | 31.7.2026 | 0:32 Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Jakinn virðist stefna í suðvesturátt, mót kvöldsólinni. Samsett mynd/Ljósmynd/Halldór G Hálfdansson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Halldór Gunnar Hálfdansson, bóndi að Molastöðum í Fljótum og leiðsögumaður, lagði leið sína vestur að Straumnesvita þar sem sést hafði til stærðarinnar ísjaka fyrr í dag og myndaði jakann í því sem virðast vera dauðateygjur hans mót kvöldsólinni. „Jakinn er nú alveg örugglega 20 kílómetra úti á sjó, langt úti á miðjum Skagafirði og eiginlega bara nær Skaganum, myndi ég segja,“ segir Halldór í samtali við mbl.is. Jakinn virðist því stefna í suðvesturátt, sem er í samræmi við frásagnir annarra íbúa fjarðarins af ferðum jakans. „Mér fannst hann vera svolítið nálægt landi um fjögurleytið í dag, en okkur finnst hann hafa verið að fjarlægjast svolítið núna síðustu klukkustundirnar eða jafnvel að bráðna,“ segir Sjöfn Guðmundsdóttir sem búsett er í Fljótum í Skagafirði og rekur gistiheimilið Gimbur. Frétt af mbl.is 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Frétt af mbl.is Gríðarstóru borgarísjakarnir færast fjær landi Það glitti í yfirborð jakans þar sem hann sigldi eftir Skagafirðinum, en stærsti hluti ísjaka á borð við þennan leynist gjarnan undir yfirborði sjávar eins og greina má vinstra megin á myndinni. Ljósmynd/Halldór G Hálfdansson Bráðni væntanlega fljótt Hún segir jakann virðast stefna í suðvesturátt frá bænum þeirra í Straumnesi, sem er á norðanverðum Tröllaskaga austan megin í firðinum, ef hann er á annað borð á hreyfingu. Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands gat ekki staðfest ferðir jakans í suðvesturátt að svo stöddu, en taldi það líklegt að jakinn væri að bráðna hratt í blíðviðrinu. „Það er hásumar, svo hann bráðnar væntanlega fljótt,“ segir hann. Ljósmynd/Halldór G Hálfdansson Ljósmynd/Halldór G Hálfdansson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Klopp stendur frammi fyrir ómögulegu verkefni Pönnukökur í Ytri í tilefni áfangans Slot orðaður við starfið Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Bandero siglir utan í skip Hvals Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Var í afneitun vegna versnandi heilsu Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Gátu ekki lent á Reykjavíkurflugvelli Hjólaði 130 kílómetra fastur í sama gírnum Watson um eftirförina: „Meira á leiðinni“ Andlát: Skúli Steinar Pétursson Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Rændu heilum gámi af kampavíni Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Nýjast á mbl.is » Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Klopp stendur frammi fyrir ómögulegu verkefni Pönnukökur í Ytri í tilefni áfangans Slot orðaður við starfið Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Svara innbrotahrinunni með átaki og endurnýjun Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Hvalur 9 virðist stefna aftur út á haf Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Bandero siglir utan í skip Hvals Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Var í afneitun vegna versnandi heilsu Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Gátu ekki lent á Reykjavíkurflugvelli Hjólaði 130 kílómetra fastur í sama gírnum Watson um eftirförina: „Meira á leiðinni“ Andlát: Skúli Steinar Pétursson Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Rændu heilum gámi af kampavíni Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann