Málmleitarfélagið Amaroq hefur verið birt skráningarlýsingu í aðdraganda skráningar á aðalmarkað Kauphallarinnar í London. Í tilkynningu Amaroq kemur fram að gert sé ráð fyrir að viðskipti með bréf félagsins á aðalmarkaðnum í London hefjist á föstudaginn, 31. júlí. Félagið tilkynnti í febrúar um að það hefði tekið ákvörðun um að flytja félagið af AIM-vaxtamarkaðnum yfir á aðalmarkað kauphallarinnar í London. Samhliða var tilkynnt um að það hefði óskað eftir afskráningu úr TSX Venture-kauphöllinni í Kanada. Sjá einnig Undirbúa skráningu á aðalmarkað í Lundúnum Félagið greindi einnig í dag frá uppfærðu auðlindamati fyrir Nalunaq-gullnámuna á Suður-Grænlandi. Samkvæmt nýja matinu nema áætlaðar gullauðlindir nú samtals 504 þúsund únsum með meðalgildi upp á 30,35 grömm af gulli á tonn. Það er í fyrsta sinn sem auðlindamatið fer yfir hálfa milljón únsa. Þar af jukust staðfestar (e. indicated) auðlindir um 10,6% frá fyrra mati, sem styrkir að sögn félagsins grunninn að fyrsta formlega námuvinnsluforðanum (mineral reserve). James Gilbertson, yfirmaður rannsókna hjá Amaroq, segir áfangann staðfesta stöðu Nalunaq sem einnar fremstu gullnámu sinnar tegundar. Hann segir aukninguna fyrst og fremst endurspegla árangur af neðanjarðarborunum og sýnatöku sem hafi aukið vissu um umfang auðlindarinnar. Amaroq hefur lýst því að markmiðið með flutningnum af AIM yfir á aðalmarkað Lundúnakauphallar væri að auka sýnileika félagsins á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, breikka hóp mögulegra stofnanafjárfesta og styðja við áframhaldandi vöxt félagsins. Sjá einnig Sigurbjörn tekur við stjórnarformennsku hjá Amaroq