Innlent | Morgunblaðið | 1.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: Nú er frí og á þriðjudag hefst baráttan að nýju Halla Gunnarsdóttir mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Þegar frídagur verslunarmanna var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn árið 1894 markaði hann ákveðin þáttaskil. Á þeim tíma átti vinnandi fólk ekkert sumarfrí og helgarfrí voru alls ekki sjálfsögð. Þarna fékk verslunarfólk hins vegar frí og Verslunarmannafélag Reykjavíkur stóð fyrir útiskemmtun með ræðuhöldum, leikjum, lúðraspili og söng. Þetta var 13. september og ekki fylgir sögunni, sem er ágætlega skráð á Vísindavefnum og í ritum Árna Björnssonar, hvort viðrað hafi vel á verslunarfólk, en útigleðin stóð frá hádegi og langt fram á kvöld. Ölföng og lemonade Frídagur verslunarmanna rann síðar saman við þjóðhátíðarhöld Reykvíkinga sem skipulögð voru með aðkomu fjölda félagasamtaka. Rétt upp úr þarsíðustu aldamótum skildu þó leiðir þar sem bindindismenn voru komnir í meirihluta í þjóðhátíðarnefndinni og ákváðu að vínveitingar skyldu með öllu bannaðar. Verslunarfólk gat ekki fellt sig við það og hélt sína eigin hátíð þar sem boðið var upp á „ölföng og lemonade“. Samspil verkalýðshreyfingarinnar og bindindishreyfingarinnar er vafalaust efni í áhugaverða stúdíu, en þessar hreyfingar þróast um svipað leyti og einhver voru áhrif þeirrar fyrrnefndu á hina síðarnefndu! Smám saman varð frídagur verslunarmanna að almennum frídegi fyrsta mánudaginn í ágúst og um miðja síðustu öld tók verslunarmannahelgin á sig þá mynd sem hún hefur í dag. Samhliða varð verkalýðshreyfingunni talsvert ágengt í baráttunni fyrir orlofi til handa vinnandi fólki en enn er samspilið milli vinnu og einkalífs eitt af mikilvægustu viðfangsefnum VR. Orlofssjóður félagsins stendur ekki eingöngu undir myndarlegri uppbyggingu sumarhúsa um allt land, heldur veitir félagsfólki líka styrki í gegnum VR varasjóð til að fara í frí og öðlast tilbreytingu frá hversdeginum. Við tökum þessu sem gefnum hlut, að fá samfleytt frí frá vinnu og geta skipt um umhverfi, en þetta eru réttindi sem einu sinni voru óþekkt og útheimtu mikla baráttu. Forsendur kjarasamninga bresta Um þessar mundir markar frídagur verslunarmanna líka ákveðin þáttaskil en að honum loknum tekur hversdagurinn við hjá mörgum þegar sumarleyfum lýkur. Leikskólar opna að nýju og skólabörn fara að huga að nýjum skólavetri. Hjá okkur í VR verður engin lognmolla, enda eru forsendur kjarasamninga að bresta og verður það staðfest með vísitölumælingu undir lok þessa mánaðar. Við höfum lagt þunga áherslu á það að kjarasamningar geti ekki runnið sitt skeið á enda nema fyrirtæki og stjórnvöld axli sína ábyrgð og standi við loforð sem þau hafa gefið. Þvert á þau loforð hafa verið gríðarlegar verð- og gjaldskrárhækkanir sem kynda undir verðbólgunni, ásamt því að allt of hægt gengur að ná fram merkingarbærum aðgerðum í húsnæðismálum. Aðgerðaleysið getur hæglega leitt til þess að okkur verði nauðugur einn sá kostur að segja upp kjarasamningum og við höfum þegar hafið undirbúning að kjaraviðræðum. En nú er frí! Njótum þess og þökkum fyrri kynslóðum baráttuna fyrir orlofi og lúxus. Sleppum búðarferðum á frídegi verslunarmanna af virðingu við verslunarfólk og sögu þessa dags og mætum sameinuð í baráttuna sem fram undan er! Gleðilega verslunarmannahelgi! Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll Enn einn leikmaðurinn á förum frá Newcastle? Aðsend grein: Við semjum ekki um grundvallarreglurnar Aðsend grein: Nú er frí og á þriðjudag hefst baráttan að nýju Úr ólíkum áttum: Spurningin Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríki ESB á móti varanlegum undanþágum Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Mest lesið Í gær Í vikunni Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Sérkennilegt að húsið standi autt Myndir: Þjóðhátíð sett í veðurblíðu Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Saklaus læknatími endaði með innlögn Verslun en ekki kosningaskrifstofa Tvírukkanir hafa verið leiðréttar Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Saklaus læknatími endaði með innlögn Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll Enn einn leikmaðurinn á förum frá Newcastle? Aðsend grein: Við semjum ekki um grundvallarreglurnar Aðsend grein: Nú er frí og á þriðjudag hefst baráttan að nýju Úr ólíkum áttum: Spurningin Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Bandero kominn til hafnar Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ Mest lesið Í gær Í vikunni Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Sérkennilegt að húsið standi autt Myndir: Þjóðhátíð sett í veðurblíðu Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Saklaus læknatími endaði með innlögn Verslun en ekki kosningaskrifstofa Tvírukkanir hafa verið leiðréttar Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Saklaus læknatími endaði með innlögn Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“