Ólga hefur verið hjá ráðamönnum fótboltahreyfingarinnar undanfarna daga eftir að Gianni Infantino forseti FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, vildi stofna dótturfyrirtæki hjá FIFA, nokkurs konar viðburðafyrirtæki sem sæi um mótahald stærri móta og myndi selja hluta fyrirtækisins til einkaaðila. Þessi ráðahagur fór svo illa í aðildarsamböndin að Evrópska knattspyrnusambandið sendi frá sér yfirlýsingu þar sem öll knattspyrnusambönd Evrópu neituðu að taka þátt í mótum FIFA yrði þetta að veruleika og CONCACAF, Knattspyrnusamband Norður- og mið-Ameríku og karabísku eyjanna mótmælti áformunum líka. Infantino dró því í land, en hefur með þessu öllu saman glatað tiltrú og trausti víða. Svisslendingurinn hefur verið forseti FIFA frá árinu 2016 og sækist eftir endurkjöri á næsta ári. Til stóð að hann yrði einn í kjöri og var kominn með stuðning flestra knattspyrnusambanda heimsins þar um. Nú fjölgar hins vegar hratt í hópi þeirra sambanda sem hafa dregið þennan stuðning sinn til baka. Wales og Svíþjóð riðu á vaðið í gær og svo bættist Finnland við. Nú hafa England og Serbía einnig bæst við og því ljóst að það hefur hitnað vel undir Infantino. Helsti ráðgjafi Infantino sagði af sér í síðustu viku þar sem hann var ósáttur við plön FIFA um að einkavæða HM, og þá mótmælti Svíinn Mattias Grafström framkvæmdastjóri FIFA plönunum einnig. Helstu bandamenn forsetans eru því farnir að stökkva frá borði einn af öðrum og óvíst hvernig Infantino geti staðið af sér storminn. Victor Montagliani forseti Concacaf þykir líklegastur sem arftaki Infantino láti sá svissneski forsetastólinn frá sér, en hann hefur ekkert látið hafa eftir sér hvort hann liggi einu sinni undir feldi með framtíð sína. Infantino er 56 ára og var áður framkvæmdastjóri Evrópska knattspyrnusambandsins og hefur starfað innan alþjóðlegu knattspyrnuhreyfingarinnar frá árinu 2000.