Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

HM sniðganga UEFA stendur þrátt fyrir afsökun Infantino

Read Full Article →

Evrópska knattspyrnusambandið (UEFA) segir í skriflegu svari til Sky Sports í dag að sambandið standi áfram við hótun sína að sniðganga mót á vegum Alþjóða knattspyrnusambandsins (FIFA) þar sem skilyrðum UEFA hafi ekki verið fullnægt. Gianni Infantino forseti FIFA baðst í gær afsökun á því að hafa ætlað að selja hlut í mótahaldi FIFA. Það gerði hann í yfirlýsingu eftir neyðarfund hjá FIFA ráðinu sem haldinn var í Rabat í Marokkó. Þessi yfirlýsing nægir þó ekki UEFA. Í svari UEFA til Sky segir meðal annars : „Aðildarsambönd UEFA voru mjög skýr um þau skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt svo þau taki aftur þátt í keppnum á vegum FIFA. Í fyrsta lagi þurfti að falla frá áformum um að selja hlut í helstu keppnum FIFA og í öðru lagi þurfti að liggja fyrir trygging fyrir því að slíkar tilraunir til að breyta eðli leiksins yrðu aldrei gerðar aftur. Þessi skilyrði hafa ekki verið uppfyllt. Þar að auki kom skýrt fram í yfirlýsingu UEFA á laugardag að sambandið hefði glatað trausti á forsetatíð Giannis Infantinos. Sú afstaða stendur enn. Yfirlýsingin í gær um að sumir starfsmenn forseta FIFA – sem eru í starfi hjá honum og eiga starfsframa sinn undir velvild hans – séu honum sammála breytir engu.“ Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) er eitt af 55 aðildarsamböndum UEFA og er því meðal knattspyrnusambanda sem voru andvíg tilraunum FIFA til að selja fimmtungshlut í HM karla í fótbolta til einkaaðila. Samkvæmt upplýsingum sem RÚV hefur frá KSÍ stendur KSÍ einarðlega með öllum ákvörðunum UEFA í málinu. Staða Gianni Infantino forseta FIFA þrengist því sífellt þó svo að hann hafi ekki sagt af sér. Til stendur að hann verði einn í kjöri til forseta FIFA snemma á næsta ári, en miðað við yfirlýsingu UEFA til Sky í dag er ljóst að til að bera klæði á vopnin þurfi Infantino að víkja.

Share this article