Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sænska og velska knattspyrnusambandið lýsa yfir vantrausti

Read Full Article →

Knattspyrnusambönd Wales og Svíþjóðar hafa lýst því yfir að þau styðji ekki framboð Gianni Infantino, forseta FIFA, til endurkjörs. Velska sambandið hafði áður lýst yfir stuðningi við framboðið. Enskir miðlar segja að enska knattspyrnusambandið, FA, muni einnig draga stuðning sinn til baka og von er á sams konar yfirlýsingu frá fleiri samböndum. Finnska sambandið varð fyrir helgi það fyrsta til að lýsa yfir andstöðu við Infantino. Forsetakjör verður haldið í Alþjóðaknattspyrnusambandinu í mars á næsta ári og þótti Infantino hafa sigurinn vísan allt þar til greint var frá áformum um sölu á hlut í heimsmeistarakeppninni til einkafjárfesta. Hugmyndin féll í grýttan jarðveg, einkum meðal knattspyrnusambanda í Evrópu. Evrópska sambandið, UEFA, lýsti yfir vantrausti á Infantino vegna áformanna. Í gær varð Knattspyrnusamband Wales það fyrsta til að draga stuðning sinn við framboð Infantinos formlega til baka. Enn sem komið er hafa þó engin mótframboð borist. Fréttin var leiðrétt með upplýsingum um andstöðu finnska sambandsins.

Share this article