Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sænska og velska knattspyrnusambandið ríða á vaðið

Read Full Article →

Knattspyrnusambönd Wales og Svíþjóðar fyrstu knattspyrnusambönd Evrópu til að lýsa því yfir að þau styðji ekki framboð Gianni Infantino, forseta FIFA, til endurkjörs. Velska sambandið hafði áður lýst yfir stuðningi við framboðið. Enskir miðlar segja að enska knattspyrnusambandið, FA, muni einnig draga stuðning sinn til baka. Forsetakjör verður haldið í Alþjóðaknattspyrnusambandinu í mars á næsta ári og þótti Infantino hafa sigurinn vísan allt þar til greint var frá áformum um sölu á hlut í Heimsmeistarakeppninni til einkafjárfesta. Hugmyndin féll í grýttan jarðveg, einkum meðal knattspyrnusambanda í Evrópu. Evrópska sambandið, UEFA, lýsti yfir vantrausti á Infantino vegna áformanna. Í gær varð Knattspyrnusamband Wales það fyrsta til að draga stuðning sinn við framboð Infantinos formlega til baka. Enn sem komið er hafa þó engin mótframboð borist.

Share this article