Innlent | mbl | 4.8.2026 | 12:17 Páll Óskar: „Eins og að taka þátt í stórmóti“ Páll Óskar heldur upp á Pallaball á laugardaginn í Gamla Bíó. Samsett mynd/Hallur Már/Kristinn Magnússon Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Hinsegin dagar standa nú yfir alla vikuna og tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson vinnur hörðum höndum við að hanna trukkinn sem notaður verður í Gleðigöngunni á laugardaginn. Á laugardagskvöldið heldur hann sitt árlega Pallaball í Gamla bíói klukkan 21 til eitt eftir miðnætti og hver einasta króna sem hann fær á ballinu fer í kostnaðinn við trukkinn. Blaðamaður sló á þráðinn til Páls Óskars sem segist alltaf hafa haldið ball að kvöldi Gleðigöngunnar einfaldlega til þess að trukkurinn geti orðið að veruleika í göngunni. Frétt af mbl.is Hinsegin dagar hefjast í dag „Þetta kostar sitt og hver einasta króna sem kemur inn á ballið fer í að halda ballið fyrir það fyrsta og svo gera trukk. Svo borga ég mismuninn og yppi öxlum,“ segir hann í samtali við mbl.is. „Þetta er alltaf jafn gefandi og tryllt, jafnvel þótt vinnan við þetta sé mikil.“ Páll Óskar við vagninn sinn í fyrra ásamt eiginmanni sínum Edgar Antonio Lucena Angarita. mbl.is/Karítas Fyrsta sem ég segi: „Djöfull var þetta gaman“ Þá var hann spurður út í Pallaballið og hvort ekkert mál væri að dansa og syngja í fjóra klukkutíma samfleytt. „Nei, ef ég passa mig á því hvað ég geri dagana á undan og dagana á eftir, þá gengur þetta alveg. Þetta er svolítið eins og að taka þátt í stórmóti, maður þarf bara að passa sig á að mæta ekki kaldur inn á völlinn. Það fyrsta sem ég segi svo þegar ég vakna daginn eftir er: „Djöfull var þetta gaman.““ Frétt af mbl.is Hinsegin fólk veit hvað er að vera fiðrildi Á föstudeginum mun Páll Óskar dæma í kökuskreytingarkeppni. Hann kveðst ekki ætla að sækja fleiri viðburði þar sem hann vinnur hörðum höndum að því að smíða trukkinn fyrir Gleðigönguna. „Á trukknum er venjulega skúlptúr sem í þessu tilfelli verður kannski átta metra hár og svo er fullt af fólki með mér uppi á trukknum. Í rauninni er þetta eins og leikhús eða klúbbur á hjólum,“ greinir hann frá. Eftir Gleðigönguna hyggst hann fara í Hljómskálagarðinn og hleypur svo beint í Gamla bíó þar sem Pallaballið fer fram. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Þúsundir hoppa með FM95Blö á Akureyri Páll Óskar: „Eins og að taka þátt í stórmóti“ Guðmundur selur 350 milljóna hús Blikar hefja Evrópuævintýrið í Kasakstan Lánaður í Breiðholtið Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Ósamstiga um afskipti erlendra ráðamanna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll Eins og að ég væri í návist almættisins Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Hleypur fyrir ketti í minningu hunds Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Maðurinn er kominn í leitirnar Ráðherra vill breyta lögum um .is Færri erlendir ríkisborgarar til landsins Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Þúsundir hoppa með FM95Blö á Akureyri Páll Óskar: „Eins og að taka þátt í stórmóti“ Guðmundur selur 350 milljóna hús Blikar hefja Evrópuævintýrið í Kasakstan Lánaður í Breiðholtið Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Ósamstiga um afskipti erlendra ráðamanna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Fjórtán ábendingar borist um minka á ferð Ráðuneytið taki þátt í ESB-áróðri Hleypur fyrir ketti í minningu hunds Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Maðurinn er kominn í leitirnar Ráðherra vill breyta lögum um .is Færri erlendir ríkisborgarar til landsins Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn