Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Við erum líka trukkadræverar og sjómenn“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.8.2026 | 22:07 „Við erum líka trukkadræverar og sjómenn“ Páll Óskar í öndvegi undir blýgráum himni í Gleðigöngunni dag. Hann gaf sér tíma í viðtal í miðri hljóðprufu í Gamla bíói fyrir ball í kvöld til að ræða stöðuna í réttindamálum hinsegin fólks. mbl.is/Birta Margrét Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ég hef tekið virkan þátt í göngunni frá upphafi, við fórum fyrstu skipulögðu Gleðigönguna árið 2000 en þetta er samt bara 25. skiptið sem hún er haldin vegna covid, það var engin ganga árin 2020 og '21,“ segi Páll Óskar Hjálmtýsson í samtali við mbl.is um hátíðarhöld hinsegin fólks og stuðningsmanna þess í dag. Pál Óskar má með réttu kalla primus motor göngunnar sem hann hefur ávallt verið viss þungamiðja í með söng sínum og ekki síður viðhorfi í réttindabaráttu þjóðfélagshóps sem löngum hefur átt undir högg að sækja og á enn svo sem glöggt kemur fram í skrifum svokallaðra „virkra í athugasemdum“. Meira um það hér á eftir. Páll segir alltaf hafa viðrað vel á gönguna nema kannski 2003 og 2012 og veðrið slapp fyrir horn í dag þótt sólin hafi ekki dregið gluggatjöld sín frá. mbl.is/Birta Margrét Páll Óskar segir alltaf hafa viðrað vel á Gleðigönguna, nema raunar tvisvar, 2003 og 2012, „núna var rigningarsuddi í kortunum en klukkan níu í morgun stytti upp. Enginn lét kulda eða vind í dag á sig fá enda höfum við hinsegin fólkið mátt ganga í gegnum alls konar storma gegnum mannkynssöguna og við komumst léttilega gegnum þennan storm,“ segir Páll Óskar sem segir 50 atriði hafa verið skráð við hátíðarhöldin í dag samanborið við 38 í fyrra. Alnæmisparanojan gaf skotleyfi Gengið hefur á ýmsu að hans sögn, „til dæmis fánamálin miklu og svo virðist sem gefið hafi verið leyfi á fúkyrðaflaum í garð hinsegin fólks í kommentakerfunum og þess vegna er þessi hiti í fólki, við vitum að ef svona fúkyrðum er leyft að standa gæti það þróast út í eitthvað annað og meira og verra“, heldur hann áfram. Páll Óskar telur hinsegin fólk nú upplifa sama fúkyrðaflaum og orðaval og árið 1986 þegar alnæmisfaraldurinn var í algleymingi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var á sínum stað í dag en segir í dagbók sinni að einhverjir hafi ekki virt lokanir vegna Gleðigöngunnar. Engin mjög alvarleg mál komu þó upp frá 05 til 17 ef marka má dagbók lögreglu. mbl.is/Birta Margrét „Alnæmisparanojan gaf einhvers konar skotleyfi á okkur líka. Nú tek ég eftir orðræðu um að hinsegin baráttan hafi einhverja pólitíska vinstri slagsíðu og þetta sé eitthvað sem fólk segist vera ósammála. Svo spyr það hvort það megi ekki hafa sína skoðun á okkur í friði og ég vil bara segja þetta við þá sem þar tala: Kynhneigð þín og kynvitund þín er ekki pólitík. Það sem þú finnur innra með þér þegar þú gerir þér grein fyrir því hver þú ert og hver kynhneigð þín er, það er ekki pólitík. En viðbrögð annars fólk við þessu er pólitík, ekki það sem við erum, við erum alls staðar, transfólk, intersex-fólk, samkynhneigt fólk og tvíkynhneigt fólk. Við erum í öllum stéttum þjóðfélagsins. Ef ég tek okkur hommana sem dæmi, við erum ekki bara ballerínur og hárgreiðslumeistarar, við erum líka trukkadræverar og sjómenn, við rekum pítsastaði, við erum hjúkrunarfræðingar, stjórnmálamenn og poppstjörnur,“ segir Páll Óskar, poppstjarna af Sólvallagötunni til áratuga. Hann segir útilokað undir nokkrum kringumstæðum að gefa það í skyn að barátta hinsegin fólks hafi einhverja pólitíska slagsíðu til vinstri eða hægri. „Ég blæs á þetta,“ segir Páll Óskar, staddur í miðri hljóðprufu í Gamla bíói fyrir ball þar í kvöld. Regnbogaskreyttir göngumenn á hinsegin hátíð í dag með kirkju í baksýn. Þegar alnæmisfaraldurinn var eitt stóru málanna á Íslandi á níunda áratugnum barst gagnrýnin einnig frá kirkjunnar mönnum eins og íslenskur hommi í Noregi ræddi við mbl.is fyrir nokkrum árum. mbl.is/Birta Margrét Bölbænir og draugasögur Hvað er að angra fólk, hvaða ástæður gefur það upp fyrir andúð sinni á hinsegin fólki? Páll svarar því til að transfólk hafi vaknað til vitundar á síðustu tveimur áratugum. „Þegar þau gerðu sér grein fyrir því hver þau eru og fóru að skoða sig sjálf og samfélagið fengu þau á sig nákvæmlega sömu pílur og hommar og lesbíur fengu á sínum tíma þegar þau vöknuðu til vitundar á sínum tíma. Einu rökin eru bölbænir og draugasögur um að transfólk sé svo hættulegt börnum, að það sé verið að breyta börnum í eitthvað sem þau eru ekki. Ég fékk nú aldeilis að heyra það 1991 þegar ég kom út og var að troða upp á félagsmiðstöðvum fyrir unglinga. Þá var ég spurður hvort ég ætlaði að fara að smita unglinga af kynvillu. Ef kynvitund væri smitsjúkdómur væri ég búinn að vinna mjög lélegt djobb síðustu 35 ár. Mér hefur ekki tekist að smita neinn, hvorki unga né aldna, en við höfum þurft að lifa með þessum mýtum og draugasögum sem reglulega eru þó kveðnar í kútinn,“ segir Páll Óskar og kveður fast að orði. Hann segir að undir þeim kringumstæðum nú, þegar öll spjót standi á transfólki, komi enginn út úr skápnum „í einhverju flippi“. Er komið bakslag í baráttu hinsegin fólks í dag að þínu mati? Viðmælandinn tekur ekki beinlínis undir að svo sé en slær varnagla. „Því miður kom kommentakerfið árið 2007 og þá urðu allar skoðanir jafn réttháar. Fólk á kommentakerfinum er að kafna úr skoðunum en við hinsegin fólkið erum í fínum fíling. Við allt svona mótmæli styrkjumst við hins vegar, við þéttum raðirnar. Ég hef aldrei á ævinni, síðan ég kom út í gamla daga, fundið fyrir eins sterkri samstöðu meðal hinsegin fólks eins og í dag, þú sérð það bara, 50 atriði,“ segir hann. „Því miður kom kommentakerfið árið 2007 og þá urðu allar skoðanir jafn réttháar,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson við mbl.is í spjalli um vel heppnaða hátíð í dag, ball í kvöld og áratugalanga baráttu fólks til að fá að lifa sínu lífi. mbl.is/Birta Margrét Eru að fara að telja í Hann segir tugi þúsunda hafa gengið í dag „og meirihluti fólks sem mætti þarna liggur ekki á kommentakerfinu allan daginn að ibba gogg. Við höfum engan tíma í það, ég er að fara að gera ball, ég er að fara að halda brjálað ball í Gamla bíói í kvöld, við erum að fara að telja í. Og ég verð ekki einn á sviðinu, ég verð með tvo unga hommapoppara, Álfgrím og Torfa, sem eru báðir að flytja eigið efni af eigin sólóplötum, og svo mætir alveg tryllt dragdrottning frá Venesúela sem er að mínu mati á heimsmælikvarða,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson að lokum af baráttu hinsegin fólks, Gleðigöngunni í dag, athugasemdakerfum, fordómum og balli í Gamla bíói í kvöld. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Við erum líka trukkadræverar og sjómenn“ Messi fékk flestar morðhótanir á HM Manstu þegar það var slegist um hús með leynigarði? Sektuð fyrir kynlíf við akstur Íslenski Haaland skoraði aðra þrennu á 11 mínútum Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Vistvæn stefna í loftslagsmálum er lífsnauðsyn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Heppnar að vera hinsegin á Íslandi 14 ára drengur skaut átta til bana í Taílandi Inga: Börnin hafa beðið of lengi Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Ég er ekkert að fegra lífið Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Gleðigangan í beinu streymi Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Lenti utan vegar eftir framúrakstur Afurðaverðið fellur Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » „Við erum líka trukkadræverar og sjómenn“ Messi fékk flestar morðhótanir á HM Manstu þegar það var slegist um hús með leynigarði? Sektuð fyrir kynlíf við akstur Íslenski Haaland skoraði aðra þrennu á 11 mínútum Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Vistvæn stefna í loftslagsmálum er lífsnauðsyn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ég er ekkert að fegra lífið Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Ég er ekkert að fegra lífið Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Gleðigangan í beinu streymi Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Lenti utan vegar eftir framúrakstur Afurðaverðið fellur Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“

Share this article