Innlent | Morgunblaðið | 5.8.2026 | 13:30 Hver einasta króna í trukkinn Tónlistarmaðurinn Páll Óskar efnir til síns árlega Pallaballs og rennur ágóðinn af því í smíði og hönnun trukksins fyrir Gleðigönguna. mbl.is/Kristinn Magnússon Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Hinsegin dagar hófust í gær og standa yfir alla vikuna. Um 30 viðburðir eru á dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Á laugardag fer Gleðigangan fram og að henni lokinni tekur útihátíð við í Hljómskálagarði. Um kvöldið efnir Páll Óskar svo til síns árlega Pallaballs í Gamla bíói. Setning hátíðarinnar fór fram í Iðnó í hádeginu í gær og þar flutti Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar ávarp og Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, setti hátíðina formlega. Hinn 18 ára Guðjón Þorgils Kristjánsson flutti lag Hinsegin daga í ár en það er samið af honum, Ingu Auðbjörgu Straumland og Axeli Inga Kristjánssyni. Um kvöldið fór svo fram opnunarhátíð Hinsegin daga í sjálfstæðissalnum NASA á Parliament hóteli með fjölbreyttum atriðum sem mörkuðu upphaf hátíðarvikunnar. Helga segir í samtali við Morgunblaðið að það sé metskráning af atriðum í Gleðigöngunni á laugardeginum. „Gleðigangan fer fram á laugardag klukkan tvö. Gengið verður frá Skólavörðustíg og niður í miðbæ, en metþátttaka verður í göngunni í ár. Alls verða 50 atriði í göngunni, samanborið við 38 í fyrra. Að henni lokinni tekur útihátíð við í Hljómskálagarði og það verður fjöldinn allur af listafólki sem kemur þar fram,“ segir hún. „Alltaf jafn gefandi og tryllt“ Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson vinnur hörðum höndum að því að hanna trukkinn sem notaður verður í Gleðigöngunni á laugardaginn. Á laugardagskvöldið heldur hann sitt árlega Pallaball í Gamla bíói frá klukkan 21 til eitt eftir miðnætti og hver einasta króna sem hann aflar með ballinu fer í kostnaðinn við trukkinn. Blaðamaður sló á þráðinn til Páls Óskars sem segist alltaf hafa haldið ball að kvöldi Gleðigöngunnar einfaldlega til þess að trukkurinn geti orðið að veruleika í göngunni. „Þetta kostar sitt og hver einasta króna sem kemur inn á ballið fer í að halda ballið fyrir það fyrsta og síðan í að smíða trukkinn. Svo borga ég mismuninn og yppi öxlum,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. „Þetta er alltaf jafn gefandi og tryllt, jafnvel þótt vinnan við þetta sé mikil.“ Þá var hann spurður út í Pallaballið og hvort ekkert mál væri að dansa og syngja í fjóra klukkutíma samfleytt. „Nei, ef ég passa mig á því hvað ég geri dagana á undan og dagana á eftir, þá gengur þetta alveg. Þetta er svolítið eins og að taka þátt í stórmóti, maður þarf bara að passa sig á að mæta ekki kaldur inn á völlinn. Það fyrsta sem ég segi svo þegar ég vakna daginn eftir er: „Djöfull var þetta gaman.““ Eins og klúbbur á hjólum Á föstudeginum ætlar Páll Óskar að dæma í kökuskreytingarkeppni. Hann kveðst ekki ætla að sækja fleiri viðburði þar sem hann vinnur hörðum höndum að því að smíða trukkinn fyrir Gleðigönguna. „Á trukknum er venjulega skúlptúr sem í þessu tilfelli verður kannski átta metra hár og svo er fullt af fólki með mér uppi á trukknum. Í rauninni er þetta eins og leikhús eða klúbbur á hjólum,“ greinir hann frá. Eftir Gleðigönguna hyggst hann fara í Hljómskálagarðinn og hleypur svo beint í Gamla bíó þar sem Pallaballið fer fram. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Messi gefur til uppbyggingar eftir skógareldana Vinna nótt sem nýtan dag við lagninguna Hver einasta króna í trukkinn Hlín hafði betur í systraslag Svona heillaði Dorrit íslensku þjóðina Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Hafa haldlagt 14 þúsund ólögleg peptíð Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Vígja hjón án tilskilinna réttinda Mest lesið Í gær Í vikunni Verndar ekki kynlífsverkafólk „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur Stórtónleikar Bubba í nýju þjóðarhöllinni? Ný vatnslögn til Eyja Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Færri kostir við aðildarviðræður Birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Neytendastofa sektar Parka og EasyPark „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Maðurinn er kominn í leitirnar Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Nýjast á mbl.is » Messi gefur til uppbyggingar eftir skógareldana Vinna nótt sem nýtan dag við lagninguna Hver einasta króna í trukkinn Hlín hafði betur í systraslag Svona heillaði Dorrit íslensku þjóðina Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki aðkallandi fyrir Ísland að bregðast við Ráðuneytið taki þátt í ESB-áróðri Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Mest lesið Í gær Í vikunni Verndar ekki kynlífsverkafólk „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur Stórtónleikar Bubba í nýju þjóðarhöllinni? Ný vatnslögn til Eyja Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Færri kostir við aðildarviðræður Birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Neytendastofa sektar Parka og EasyPark „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Maðurinn er kominn í leitirnar Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn