Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Breiðablik klúðraði fjórum vítaspyrnum og er úr leik

Read Full Article →

Kvennalið Breiðabliks tapaði í vítaspyrnukeppni í forkeppni Meistaradeildarinnar í fótbolta í dag. Liðið gerði 1-1 jafntefli við kasakska liðið Aktobe en fjórar fyrstu vítaspyrnur Breiðabliks í vítaspyrnukeppninni fóru forgörðum. Það voru heimakonur í Aktobe sem byrjuðu betur og Yekaterina Babshuk kom þeim yfir á tólftu mínútu. Katelyn Duong jafnaði fyrir blika fjórum mínútum síðar og fleiri urðu mörkin ekki, hvorki í venjulegum leiktíma né framlengingu. Blikar fundu sig engan veginn á vítapunktinum, Agla María Albertsdóttir, Katelyn Duong, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel klúðru allar vítum sínum. Á meðan skoruðu Aktobe-konur úr þremur vítum af fjórum og það var nóg, þær eru komnar áfram í forkeppninni. Dvöl Breiðabliks í Kasakstan er þó ekki lokið, liðið mætir Dinamo Minsk frá Belarús á föstudag um sæti í fyrstu umferð forkeppni Evrópubikarsins þar sem FH verður á meðal liða.

Share this article