Breiðablik tryggði sér þátttökurétt í Evrópubikar kvenna eftir sigur í úrslitaleik gegn belrúsíska liðinu Dinamo Minsk, 3-2. Leikurinn fór fram í Kasakstan í dag þar sem Breiðablik hefur tekið þátt í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Þar sem Breiðablik og Dinamo Minsk töpuðu bæði í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar mættust þau í þessum úrslitaleik. Einum fleiri og markvörður í framlínu Dinamo konur leiddu í hálfleik en Blikar voru einum fleiri frá 16. mínútu. Blikar jöfnuðu en Dinamo konur náðu aftur forskotinu í seinni hálfleik. Agla María Albertsdóttir reyndist svo hetja Kópavogskvenna en hún jafnaði metin seint í uppbótartíma. Hún var þó hvergi nærri hætt og skoraði sigurmarkið í framlengingu. Þegar skammt var eftir af venjulegum leiktíma kom markvörðurinn Taylor Kane inn á sem útileikmaður. Hún lék í framlínu Breiðabliks út leikinn. Helstu atvik: 0-1 14' Anna Pilipenko Rautt spjald : 16' Hanna Siniauskaya 1-1 Karitas Tómasdóttir 53' 1-2 62' Anna Pilipenko 2-2 Agla María Albertsdóttir 90' 3-2 Agla María Albertsdóttir 102' Hvað er Evrópubikarinn? Evrópubikarinn, eða UEFA Women's Europa Cup, er á sínu öðru tímabili. Áður var Meistaradeild Evrópu eina Evrópukeppni kvenna. Leikið er heima og heiman með hreinu útsláttarfyrirkomulagi þar sem 32 lið mætast. Breiðablik var einnig með á fyrsta tímabili keppninnar. Þá fór liðið áfram í 8-liða úrslit eftir sigur á danska liðinu Fortuna Hjörring, en datt út gegn Häcken sem vann keppnina. Með liðinu leika Thelma Karen Pálmadóttir og Fanney Inga Birkisdóttir.