Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Strandveiðimenn bíða ákvörðunar ráðherra

Read Full Article →

Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að strandveiðitímabilinu gæti lokið í dag nema innviðaráðherra úthluti viðbótarheimildum til veiðanna. Klárast hratt í góðu veðri „Staðan er sú að það eru 750 tonn eftir í pottinum og það er rosalega gott veður út um allt land núna,“ segir Kjartan þegar rætt er við hann fyrir hádegi í gær. Á góðviðrisdögum geti heildarveiðin vel farið upp í 400 tonn þannig að óbreyttu muni potturinn líklega klárast í dag, miðvikudag og Fiskistofa stöðva veiðarnar. Heimildirnar færu yfir fjórtán þúsund tonn Úthlutun til strandveiðanna var í allt 13. 350 tonn og af þeim voru við upphaf dags í gær 750 tonn óveidd sem fyrr segir. Kjartan segir strandveiðimenn telja að 960 tonn sem eftir séu í svokölluðum skiptipotti ættu að renna til þeirra. Þá yrðu heimildirnar í heild orðnar 14.310 tonn. Þannig myndu nokkrir dagar bætast við strandveiðarnar í ár þótt þeir myndu aldrei ná því að verða 48 eins og lofað hafi verið. Fiskistofa sé farin að setja sig í stellingar að stoppa veiðarnar Una Katla Kjartansdóttir og Kjartan Páll Sveinsson. „Ef að þessi 960 tonn koma ekki þá er miðvikudagurinn mjög líklega síðasti dagurinn. Ráðherrann segir að hann sé að skoða þetta en það er allt sem að mælir með því að það sé gert,“ segir Kjartan spurður hvort hann reikni fastlega með að innviðaráðherra ráðstafi þessum 960 tonnum til strandveiðinnar. Vonandi verði það ákveðið með hraði því Fiskistofa sé farin að setja sig í stellingar að stoppa veiðarnar. Misst úr nokkra sóknardaga vegna veðurs vestanlands Þótt vertíðin hafi í heild gengið framúrskarandi vel segir Kjartan menn hafi misst úr nokkra sóknardaga vegna veðurs vestanlands þar sem flestir bátarnir séu. „Við náum nú aldrei 48 dögum úr þessu en með þessari viðbót gætu þeir kannski orðið 43 eða 44,“ segir hann. Við það myndu menn vera sáttir að þessu sinni. Rími við það sem strandveiðimenn hafi sagt „Þetta náttúrlega stemmir við það sem að við höfum verið að segja; að það þarf sirka 15 til 16 þúsund tonn í þennan pott. Þess vegna er mjög mikilvægt að við fáum þessa viðbót til þess að komast eins nálægt 48 dögunum og hægt er, svo við vitum hvernig þetta lítur út,“ segir Kjartan. „Við höfum haft ágætlega upp úr þessu“ Varðandi vertíðina í heild segir Kjartan strandveiðimenn hafa verið að fá mjög gott verð og að aflinn hafi verið mjög góður. „Þetta er besta vertíðin frá upphafi, það er ekki nokkur einasta spurning. Fiskverð hefur verið þannig við höfum haft ágætlega upp úr þessu,“ segir Kjartan, sem nú bíður bara eftir ákvörðun innviðaráðherra.

Share this article