Innlent | Morgunblaðið | 6.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: Verjum vistkerfi hafsins Svanur Guðmundsson Eyþór Árnason Setja bókamerki Við Íslendingar takmörkum veiðar á fiski niður í hvert tonn. Veiðisvæðum er lokað, veiðarfæri takmörkuð og útgerðir þurfa að lúta ströngum reglum sem eiga að tryggja sjálfbæra nýtingu fiskistofna. Þetta er skynsamlegt. Afkoma þjóðarinnar byggist að verulegu leyti á því að vel sé gengið um auðlindir hafsins. En þegar kemur að hvölum virðist önnur hugsun taka við. Þá er gjarnan gengið út frá því að fjölgun sé alltaf jákvæð, að friðun sé hlutlaus ákvörðun og að hvalurinn standi einhvern veginn utan við vistkerfið. Þannig fái hvalurinn að éta eins og hann í sig getur látið. Svo er auðvitað ekki. Hvalurinn er hluti af vistkerfinu, rétt eins og þorskur, loðna, síld, sjófugl, selur og maðurinn. Hann étur úr sömu takmörkuðu fæðukistu og nytjastofnarnir sem við leggjum mikla fjármuni í að rannsaka og vernda. Það er því óskiljanlegt að hægt sé að ræða fiskveiðistjórnun án þess að afrán hvala og annarra sjávarspendýra sé tekið með í reikninginn. Ekki er hægt að hámarka allt Í umræðunni virðist stundum gengið út frá því að markmiðið eigi að vera að allir stofnar verði eins stórir og mögulegt er. En náttúran virkar ekki þannig. Ekki er hægt að hámarka samtímis stofna hvala, sela, sjófugla, þorsks, loðnu og síldar. Tegundirnar keppa um fæðu og sumar éta aðrar. Fjölgun í einum stofni getur því haft áhrif á afrakstur annars. Vistkerfisstjórnun snýst ekki um að hámarka alla stofna. Hún snýst um að skilja samspil þeirra og taka meðvitaðar ákvarðanir um jafnvægið milli verndar, nýtingar og verðmætasköpunar. Bláa hagkerfið hefur bent á aðra nálgun við vistkerfisnýtingu en þá sem hefur lengst af verið ráðandi. Sú nálgun byggist á því að horfa ekki eingöngu á hverja tegund fyrir sig heldur á vistkerfið í heild. Til þess þarf að tengja saman gögn um stofnstærðir, afrán, fæðuframboð, hitastig sjávar, útbreiðslu tegunda og upplýsingar frá fiskiskipaflotanum. Um leið þarf að meta hvaða nýting skilar mestum sjálfbærum ávinningi fyrir þjóðarbúið. Þetta er ekki krafa um að veiða allt sem syndir. Þetta er krafa um að ákvarðanir séu byggðar á heildstæðri greiningu en ekki tilfinningum. Varúðin þarf að ganga í báðar áttir Hafrannsóknastofnun beitir varúðarnálgun þegar óvissa ríkir um stöðu fiskistofna. Þá er veiðiráðgjöf lækkuð og útgerðir og sjávarbyggðir bera kostnaðinn af þeirri óvissu. En sama hugsun virðist ekki alltaf gilda þegar hvalastofnar stækka eða þegar þekkingu skortir á áhrifum þeirra á nytjastofna. Þar njóta hvalir vafans. Að ákveða að nýta ekki hvalastofn er ekki sú hlutlausa ákvörðun sem margir halda. Þvert á móti getur sú ákvörðun haft áhrif á loðnu, síld, þorsk og aðrar tegundir. Hún getur einnig haft áhrif á útflutningstekjur, byggð og atvinnu í landinu. Ef þekkingu skortir þarf að rannsaka málið betur. Varúð má ekki sjálfkrafa hafa í för með sér að maðurinn dragi sig í hlé á meðan öllum öðrum afræningjum er leyft að fjölga án skilgreindra stjórnunarmarkmiða. Disney-líffræði Í alþjóðlegri umræðu um hvali gætir oft þess sem kalla mætti Disney-líffræði. Náttúran er þar sýnd sem friðsælt samfélag hinna ein stöku dýrategunda sem maðurinn einn raskar. Raunveruleikinn er annar. Náttúran einkennist af samkeppni, afráni, hungri og dauða. Hvalir eru tignarleg dýr en þeir eru jafnframt stórir afræningjar. Það er engin óvirðing við náttúruna að viðurkenna þessa staðreynd. Ábyrg náttúrunýting felst í því að rannsaka stofna, ákveða nýtingarmarkmið og tryggja að veiðar séu sjálfbærar og mannúðlegar. Hægt er að vernda veika stofna og nýta sterka. Við gerum það nú þegar með fiskistofna. Stefna annarra á ekki sjálfkrafa við hér Evrópusambandið og mörg alþjóðleg náttúruverndarsamtök hafa mótað stefnu gegn hvalveiðum. Sú stefna byggist að verulegu leyti á pólitík sem sækir rök sín til tilfinninga og viðhorfum almennings í löndum sem eiga lítið undir nýtingu hafsins. Íslendingar búa við aðrar aðstæður. Lífsafkoma okkar og saga tengjast hafinu með öðrum hætti en hjá flestum Evrópuþjóðum.Við eigum að taka þátt í alþjóðlegu vísindasamstarfi og hlusta á gagnrýni. En við eigum ekki að láta erlenda þrýstihópa eða stjórnvöld annarra ríkja ákveða hvernig við stýrum auðlindum okkar. Íslensk vistkerfisstjórnun Setja þarf skýr stjórnunar- og nýtingarmarkmið fyrir hvalastofna við Ísland. Meta þarf reglulega afrán þeirra og áhrif á nytjastofna. Þar sem stofnar þola sjálfbæra nýtingu á hún að vera raunverulegur kostur. Jafnframt þarf að þróa fjölstofnamódel og nýta betur gögn flotans, nýja tækni og gervigreind til að skilja vistkerfið. Þar hefur Bláa hagkerfið þegar bent á leiðir sem geta tengt betur saman vísindi, veiðar og þjóðhagslega hagsmuni. Hafið umhverfis Ísland er garðurinn okkar. Við leyfum ekki rányrkju, en við eigum heldur ekki að láta tegundir vaxa stjórnlaust samkvæmt hugmyndum fólks sem ber enga ábyrgð á afleiðingunum. Við eigum að rannsaka hafið, rækta og nýta af skynsemi. Svanur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Bláa hagkerfisins ehf. og sjávarútvegsfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skiptir um félag í Noregi Einn látinn eftir sprengingu á Kanaríeyjum „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Hvalreki í Laugardalinn Aðsend grein: Verjum vistkerfi hafsins Umræðan Þetta er einfaldlega rangt Rétt skal vera rétt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert NATO treystir á nýja tækni Verndar ekki kynlífsverkafólk Hnífjafnar fylkingar jás og neis Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Hnífjafnar fylkingar jás og neis Enn tvö ár í að brúin yfir Ölfusá verði tekin í notkun NATO treystir á nýja tækni Á annað hundrað sótti heilsugæslu á Þjóðhátíð Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Segir efni á vegum Já til að sjá ekki ritskoðað Tímamótaleiðangur í Dyngjufjöll og Öskju Ók fram af fjögurra metra hengju Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Já í ágúst gæti fest Ísland í ESB Vígja hjón án tilskilinna réttinda Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Skiptir um félag í Noregi Einn látinn eftir sprengingu á Kanaríeyjum „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Hvalreki í Laugardalinn Aðsend grein: Verjum vistkerfi hafsins Umræðan Þetta er einfaldlega rangt Rétt skal vera rétt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafa haldlagt 14 þúsund ólögleg peptíð Enn fjölmörg innbrot: Eru með „allt í botni“ Hnífjafnar fylkingar jás og neis Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Hnífjafnar fylkingar jás og neis Enn tvö ár í að brúin yfir Ölfusá verði tekin í notkun NATO treystir á nýja tækni Á annað hundrað sótti heilsugæslu á Þjóðhátíð Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Segir efni á vegum Já til að sjá ekki ritskoðað Tímamótaleiðangur í Dyngjufjöll og Öskju Ók fram af fjögurra metra hengju Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Já í ágúst gæti fest Ísland í ESB Vígja hjón án tilskilinna réttinda Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn