Viðskipti | mbl | 6.8.2026 | 9:53 Ný skýrsla um „raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands“ Ferðamenn gæða sér á pylsu í Reykjavík. Ferðaþjónusta er stærsta útflutningsgrein landsins og Bandaríkin langstærsti þjónustumarkaðurinn, segir í tilkynningunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Evran er engin allsherjarlausn „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Hnífjafnar fylkingar jás og neis Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Segir efni á vegum Já til að sjá ekki ritskoðað » Fleiri tengdar fréttir Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál ( RSE ) hefur gefið út skýrslu um utanríkisverslun Íslands. Þar er velt upp hver séu helstu viðskiptalönd Íslands og hvaða gjaldmiðill sé notaður í þeim viðskiptum. Á meðal helstu niðurstaðna er að landaskipting vöruútflutnings sé stórlega bjöguð vegna umskipunar, að útflutningur þjónustu sé stærri en vöruútflutningur og að hlutur ESB-ríkja í heildarútflutningi Íslands sé helmingur en ekki 70%. Utanríkisviðskipti Ísland séu jafnframt að mestu gerð upp í bandaríkjadollurum en ekki evrum. Fram kemur í tilkynningu að í hagtölum Hagstofunnar um utanríkisverslun Íslands sé útflutningur iðulega flokkaður eftir fyrsta löndunarstað erlendis en ekki endanlegum áfangastað. „Þessi yfirlit Hagstofunnar endurspegla því að verulegu leyti flutningsleiðir útflutningsins frá Íslandi en ekki hvaða lönd kaupa vöruna. Þetta hefur stundum leitt til misskilnings um það hverjar raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands eru og hvar landfræðilegir viðskiptahagsmunir Íslands liggja,“ segir í tilkynningunni. Fram kemur að Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hjá Samtökum skattgreiðenda hafi yfirfarið gögn frá innlendum og erlendum hagstofum og gagnabönkum sem lúti að utanríkisviðskiptum Íslands til að fá gleggri mynd af því hverjar helstu viðskiptaþjóðir Íslands séu og hvaða gjaldmiðlar séu notaðir í þeim viðskiptum. Á meðal helstu niðurstaðna skýrslunnar: Landaskipting vöruútflutningsins er stórlega bjöguð vegna umskipunar. Holland er skráð fyrir um þriðjungi alls vöruútflutnings 2025 (34%), en stór hluti þessa útflutnings er er endurfluttur til annarra landa. Raunverulegir stærstu markaðir íslenskra vara eru Bandaríkin, Þýskaland, Bretland og Pólland. Útflutningur þjónustu er stærri en vöruútflutningur. Ferðaþjónusta (461 ma.kr.) er stærsta útflutningsgrein landsins og Bandaríkin langstærsti þjónustumarkaðurinn (32%) – nærri á pari við öll 27 ríki Evrópusambandsins samanlagt (37,5%). Séu þjónustuviðskipti talin með eru Bandaríkin stærsta einstaka viðskiptaland Íslands. Hlutur ESB-ríkja í heildarútflutningi Íslands er um helmingur – ekki 70%. Hlutur ESB í vöruútflutningi hefur verið nálægt 60%. Í þjónustuútflutningi er hlutur ESB hins vegar aðeins um 37,5%. Utanríkisviðskipti Íslands eru að mestu gerð upp í Bandaríkjadollar, ekki Evrum. Bandaríkjadalur ber um 60% af vöruútflutningi öll árin 2015–2024 og evran innan við 30%; í innflutningi vegur evran þyngra (41% á móti 38% í dollar). Íslenska krónan er nánast ekki notuð í utanríkisviðskiptum. Skýrslan verður kynnt á Hilton Reykjavík Nordica við Suðurlandsbraut í dag klukkan 14. Tengdar fréttir Ísland og ESB Evran er engin allsherjarlausn „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Hnífjafnar fylkingar jás og neis Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Segir efni á vegum Já til að sjá ekki ritskoðað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Þegar Churchill hafði sæti við borðið Sigurður Már Jónsson Íslenska lífeyriskerfið og ESB Fleira áhugavert Færri kostir við aðildarviðræður Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Meira jafnvægi að komast á markaðinn Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Ingibjörg tekur við af Þórunni Þórunn kveður Úrval Útsýn Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans 66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn Einar Örn nýr forstjóri First Water Gengið frá kaupum á Flyover Ísland fái gervigreindargagnaver Margir vilja læra á Claude Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Þórunn kveður Úrval Útsýn Ingibjörg tekur við af Þórunni Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Einar Örn nýr forstjóri First Water 66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Gengið frá kaupum á Flyover Sara Lind og Egill til Landsnets Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Þórunn kveður Úrval Útsýn Einar Örn nýr forstjóri First Water Gengið frá kaupum á Flyover Sara Lind og Egill til Landsnets Ingibjörg tekur við af Þórunni Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Amazon nær sögulegum áfanga á hlutabréfamarkaði Pistlar » Sigurður Már Jónsson Þegar Churchill hafði sæti við borðið Sigurður Már Jónsson Íslenska lífeyriskerfið og ESB Fleira áhugavert Meira jafnvægi að komast á markaðinn Íslandsmeistari eftir aðeins átta æfingar NATO treystir á nýja tækni Fjórir stungnir í Covent Garden: Kona handtekin Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Ingibjörg tekur við af Þórunni Þórunn kveður Úrval Útsýn Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans 66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn Einar Örn nýr forstjóri First Water Gengið frá kaupum á Flyover Ísland fái gervigreindargagnaver Margir vilja læra á Claude Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Þórunn kveður Úrval Útsýn Ingibjörg tekur við af Þórunni Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Einar Örn nýr forstjóri First Water 66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Gengið frá kaupum á Flyover Sara Lind og Egill til Landsnets Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Þórunn kveður Úrval Útsýn Einar Örn nýr forstjóri First Water Gengið frá kaupum á Flyover Sara Lind og Egill til Landsnets Ingibjörg tekur við af Þórunni Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Amazon nær sögulegum áfanga á hlutabréfamarkaði