Security News

Cybersecurity news aggregator

📦
LOW News Viðskiptablaðið

Nautgripastofn Bandaríkjanna sá minnsti í 75 ár

  • What: Beef prices in the US have reached a 75-year high due to shortages.
  • Impact: Consumers may face higher food costs and limited availability.
Read Full Article →

Verð á nautakjöti í bandarískum verslunum hefur hækkað um 12% á síðustu tólf mánuðum og hefur smásöluverð aldrei mælst hærra. Þrátt fyrir það njóta bandarískir nautgripabændur ekki góðs af verðhækkuninni vegna hækkandi rekstrarkostnaðar. Á vef BBC er rýnt í virðiskeðju nautakjöts í Bandaríkjunum til að skýra aðstæður verðhækkunarinnar. Samkvæmt umfjölluninni er meginástæðan skortur á nautgripum. Langvarandi þurrkar og sjúkdómar hafa leitt til þess að nautgripastofn Bandaríkjanna er nú sá minnsti síðan 1951. Skorturinn hefur ýtt verði á lifandi nautgripum í sögulegt hámark. Hækkandi söluverð hefur þó ekki skilað sér í formi aukins hagnaðar til bænda þar sem kostnaður við fóður, girðingar, vélar og annan rekstur hefur hækkað verulega frá heimsfaraldrinum. Sjá einnig Lamba- og nautakjöt hækkað mest á fimm árum Það sama á við um kjötvinnslur og fyrirtæki sem ala nautgripi til slátrunar. Þau greiða nú metverð fyrir gripi en geta aðeins að hluta velt kostnaðarhækkununum áfram til viðskiptavina sinna þar sem verslanir, veitingastaðir og neytendur geta auðveldlega valið ódýrari próteingjafa, svo sem kjúkling eða innflutt nautakjöt. Fjögur stórfyrirtæki, Tyson, JBS, Cargill og National Beef, ráða um 85% af allri nautakjötsvinnslu í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir hækkandi smásöluverð hefur Tyson til að mynda tapað meira en 500 milljónum dala á nautakjötsrekstri á fyrri helmingi yfirstandandi reikningsárs. Að mati sérfræðinga er heldur ekki búist við skjótum breytingum. Það tekur um þrjú ár frá því að ákveðið er að fjölga nautgripum þar til viðbótarframleiðsla skilar sér á markað, þar sem kvíga þarf fyrst að ná kynþroska og síðan tekur um ár fyrir kálfinn að ná sláturþyngd.

Share this article