Fyrsti dagur Íslandsmótsins í golfi er í dag og fyrsti hringurinn í kvennaflokki er yfirstaðinn. Elsa Maren Steinarsdóttir stendur fremst að honum loknum á fjórum höggum undir pari. Hún fór hringinn á Korpúlfsstaðavelli á 67 höggum. Elsa Maren byrjaði vel og var á pari eftir níu holur. Á seinni níu gerði hún svo sérlega vel þar sem hún náði í heila sex fugla á síðustu sjö holunum og setur því góðan tón fyrir framhaldið. Hún er þó hógvær þrátt fyrir frábæra takta. „Ég verð að segja að það er einhver heppni í þessu en líka bara green-in. Ég átti góð innáhögg. Það endaði bara allt í, holan var galopin einhvern veginn.“ Aðstæður á vellinum voru krefjandi þar sem það rigndi nánast viðstöðulaust í dag. Það fékk hins vegar ekki á Elsu Maren. „Aðstæðurnar voru alveg í lagi. Það var svolítið blautt á fyrri níu en rigningin var ekkert að trufla mikið af því að það er enginn vindur. Brautirnar voru aðeins blautar, annars var þetta bara geggjað.“ Elsa Maren er 21 árs og endaði í 13. sæti á Íslandsmótinu í fyrra. Elsa Maren Steinarsdóttir er efst kvenna eftir fyrsta hringinn á Íslandsmótinu í höggleik. Hún lék á samtals fjórum höggum undir pari og átti sérlega góðan endasprett. Hún gerði vel í krefjandi aðstæðum á Korpúlfsstaðavelli. Titilvörnin byrjar sveiflukennt Ríkjandi Íslandsmeistari kvenna er Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Hún er næst á eftir Elsu Maren á einu höggi undir pari. Fyrsti hringur Guðrúnar Brár var sveiflukenndur. Fjórða holan reyndist henni erfið og þar uppskar hún þrefaldan skolla. Hún vann sig hins vegar faglega upp úr því og fylgdi þessu eftir með tveimur fuglum, pari og svo aftur tveimur fuglum. Seinni níu voru stöðugri og Guðrún Brá endaði höggi undir pari. Svona er staðan eftir fyrsta hring: Elsa Maren Steinarsdóttir - -4 högg Guðrún Brá Björgvinsdóttir - -1 högg Ragnhildur Kristinsdóttir - + 2 högg Eva Kristinsdóttir - + 2 högg Perla Sól Sigurbrandsdóttir er svo jöfn þremur öðrum í fimmta sæti á þremur höggum yfir pari. Perla varð Íslandsmeistari Hér má svo sjá stöðuna í heild sinni. RÚV sýnir beint frá Íslandsmótinu um helgina. Útsending frá öðrum hring er á morgun og hefst klukkan 15:30.