Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvaðan kom Skagamærin sem er efst á Íslandsmótinu? „Kemur svolítið á óvart að hún leiði“

Read Full Article →

Elsa Maren Steinarsdóttir leiðir Íslandsmótið í golfi eftir fyrsta keppnisdag þar sem hún setti vallarmet. Sérfræðingurinn Jón Júlíus Karlsson segir það koma nokkuð á óvart. Útsending frá mótinu hefst í dag og Jón ræddi hvort að kylfingar geti náð Dagbjarti karlamegin, Korpúlfsstaðavöll og sögu Elsu Marenar. Útsending frá Íslandsmótinu hefst í dag klukkan 15:30. Einnig verður sýnt frá þriðja og fjórða hring á laugardag og sunnudag. Nýkomin úr háskólagolfi í Bandaríkjunum Elsa Maren Steinarsdóttir er í fyrsta sæti á Íslandsmótinu í golfi að loknum fyrsta keppnishring. Hún lék frábærlega á seinni níu holunum á fyrsta keppnisdegi og er á fjórum höggum undir pari. Elsa setti vallarmet og er með þriggja högga forystu á núverandi Íslandsmeistara, Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. „Það kemur svolítið á óvart að hún Elsa María Steinarsdóttir sé á toppnum. Hún er öflugur kylfingur sem lék alveg ótrúlega flott golf í gær og var með átta fugla á hringnum. Það segir ýmislegt um hversu vel hún spilaði og hefur þriggja högga forystu á Guðrúnu Brá sem kannski þykir líklegust til sigurs.“ sagði Jón Júlíus. „Það er allt galopið þarna en gaman að sjá ný nöfn á efstu síðunni. Hún Elsa er nýbúin í háskólanámi og er að snúa aftur í að leika undir merkjum síns heimaklúbbs, Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Það eru jákvæð teikn á lofti í hennar leik. Það verður gaman að sjá hvort hún nái að halda dampi og vera með í baráttunni allt mótið.“ Svona er staðan eftir fyrsta hring kvennamegin: Elsa Maren Steinarsdóttir - -4 högg Guðrún Brá Björgvinsdóttir - -1 högg Ragnhildur Kristinsdóttir - + 2 högg Eva Kristinsdóttir - + 2 högg Mikil breidd karlamegin - hverjir geta ógnað Dagbjarti? Dagbjartur Sigurbrandsson, núverandi Íslandsmeistari, lék af fingrum fram á fyrsta keppnisdegi og lauk hringnum á fimm höggum undir pari. Hann er með þriggja högga forskot á næstu menn. Jón segir mikla breidd í karlaflokki. Svona er staðan eftir fyrsta hring karlamegin: Dagbjartur Sigurbrandsson – -5 högg Tómas Eiríksson Hjaltested – -3 högg Arnór Tjörvi Þórsson – -3 högg Kristján Karl Guðjónsson – -2 högg Jóhannes Guðmundsson – -2 högg Sigurður Bjarki Blumenstein – -2 högg „Frábær byrjun hjá Dagbjarti sem er auðvitað að reyna að verja titilinn og það getur oft verið aukin pressa, sérstaklega þegar lið spila á heimavelli. Það eru alveg nokkrir kylfingar sem geta stöðvað Dagbjart en ég held að hann sé ansi líklegur eftir frábæran fyrsta hring. Maður myndi kannski halda að helstu nöfn sem koma upp séu Tómas Eiríksson Hjaltested sem er búinn að leika vel, á þremur höggum undir pari.“ Þá nefnir Jón einnig Aron Snæ sem hefur leikið vel á GSÍ mótaröðinni í sumar. „Sömuleiðis myndi ég nú kannski alltaf nefna Aron Snæ Júlíusson sem er einu undir pari, fjórum höggum á eftir Dagbjarti. Hann er auðvitað búinn að spila gríðarlega vel á þessu ári og getur alveg komið með lágan hring í dag eða um helgina.“ „Það er mikil breidd karlamegin og margir sem geta tekið stökk upp í efstu sætin með góðum hring í dag. Ég er verulega spenntur að sjá hvernig dagurinn í dag mun þróast.“ Hvaða áhrif hefur bleytan? Það rigndi hressilega á kylfinga í dag og stefnir í aftur í vætu í dag, þó minni verði. Hins vegar er veðurspáin fyrir helgina góð. Hvaða áhrif hefur þetta á mótið? „Þetta er tvíþætt í raun og veru, bæði gott og slæmt. Kylfingar geta verið beinskeyttari á pinnann þegar blautt er. Þá stoppar boltinn fyrr á flötinni og kemur meiri spuni. En það voru pollar á vellinum og blautar aðstæður. Kylfingar þurfa að kunna að slá í bleytu. Þeim sem kunna að gera það vel mun farnast vel. Þetta eru krefjandi aðstæður en á móti kemur að ef vindurinn er ekki mikill þá munum við sjá flott skor eins og við gerðum í gær hjá Dagbjarti og Elsu Mariu. Ég er mjög jákvæður fyrir því að við verðum í rauðum tölum í þessu móti.“ Hvernig er völlurinn? Jón Júlíus segir Korpúlfsstaðavöll reyna á alla helstu þætti golfsins. „Korpúlfsstaðavöllur er frábær keppnisvöllur. Kylfingarnir sem taka þátt í þessu móti eru gríðarlega spenntir að spila mót á þessum velli. Það reynir á flesta þætti kylfingsins. Hann getur bæði verið langur og brautir þröngar, og allt þar á milli. Hann lítur bara mjög vel út, völlurinn. Vonandi tekst vellinum að drena vel í dag svo það verði ekki mikið af pollum. Það er minni rigning í dag heldur en í gær. Svo er líka fín veðurspá fyrir lokadaginn. Ég efast ekki um að það muni koma vel fram í útsetningunni hversu flottur golfvöllur Korpúlfsstaðavöllur er.“ Bein útsending næstu daga Bein útsending RÚV frá keppni dagsins hefst klukkan 15:30 í dag. Föstudagur: 15:30 Laugardagur: 15:00 Sunnudagur: 14:30. Á morgun, laugardag, verður keppendum raðað í holl eftir skori. Jón Júlíus Karlsson og Ólafur Þór Ágústsson lýsa. Hörður Magnússon tekur viðtöl á vellinum. Keppni er hafin á öðrum degi. Hér má sjá stöðuna.

Share this article