Audi frumsýndi í síðustu viku stærsta bílinn í sögu fyrirtækisins Audi Q9. Tekur hann við hlutverki A8, sem var stærsti og dýrasti bíllinn frá Ingolstadt í rúma þrjá áratugi. Audi hætti að taka við pöntunum á A8 í Þýskalandi 18. febrúar síðastliðinn og framleiðslu bílsins fyrir Evrópumarkað lýkur í haust. Audi A8 verður áfram framleiddur fyrir aðra markaði fram á árið 2027. Döllner hefur sagt að arftaki A8 komi undir lok áratugarins. A8 kom fyrst á markað árið 1994 og var fyrsti fjöldaframleiddi bíllinn með álgrind. Hann keppti við Mercedes-Benz S-Class og BMW 7. Fjórða kynslóðin kom á markað árið 2017. Angela Merkel, fyrrverandi kanslari Þýskalands, ferðaðist nær alltaf um í A8 og Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu sást einnig oft í skot- og sprengjuheldri útgáfu bílsins þegar leið á ráðherratíð hans. Á Íslandi var A8 embættisbíll forsætisráðherra árin 1996–2004. Forsætisráðuneytið keypti bláan A8 í hefðbundinni lengd í janúar 1996 fyrir Davíð Oddsson. Bíllinn var embættisbíll hans þar til hann tók við embætti utanríkisráðherra haustið 2004. Audi Q9 var kynntur 29. júlí á viðburði í Brooklyn í New York, með Brooklyn-brúna í sjónmáli. Þetta er fyrsti bíll fyrirtækisins sem ber töluna 9 og fyrsti Audi-bíllinn í stærsta jeppaflokknum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .