Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stærsti Audi frá upphafi

Read Full Article →

Q9 er er stærsti bíll frá Ingolstadt frá upphafi og stærri en bílar þýsku samkeppnisaðilanna. Hann er sex eða sjö sæta og verðið byrjar á 108 þúsund evrum í Þýskalandi. Audi frumsýndi í síðustu viku stærsta bílinn í sögu fyrirtækisins. Q9 var kynntur 29. júlí á viðburði í Brooklyn í New York, með Brooklyn- brúna í sjónmáli. Þetta er fyrsti bíll fyrirtækisins sem ber töluna 9 og fyrsti Audi-bíllinn í stærsta jeppaflokknum. „Q9 er nýtt flaggskip vörulínu Audi. Með fyrsta stóra jeppanum okkar erum við að styrkja stöðu vörumerkisins á lúxusmarkaði,“ segir Gernot Döllner, forstjóri Audi. Bíllinn er 5,31 metra langur, 2,21 metra breiður og 1,81 metra hár. Hjólhafið er 3,14 metrar. Audi segir hann vera stærsta bílinn sem fyrirtækið hefur framleitt. Hann er rúmum tíu sentímetrum lengri en Mercedes-Benz GLS og um þrettán sentimetrum lengri en BMW X7. Hjólhafið er lítillega lengra en hjá GLS og um þremur og hálfum sentimetra lengra en hjá X7. Q9 er jafnframt lægri en báðir keppinautarnir og er um tveimur og hálfum sentímetra lægri en X7. Í boði eru allt að 23 tommu felgur. Bíllinn fæst í tveimur útfærslum: advanced, sem er grunnútfærslan, og S line, sem er sportútgáfan. Q9 er með sjö sætum að staðalbúnaði en fæst einnig í sex sæta útfærslu. Sjö sæti og sjálfvirkar hurðir Q9 er með sjö sætum að staðalbúnaði en fæst einnig í sex sæta útfærslu, þar sem tvö rafstillanleg einstaklingssæti eru í annarri sætaröð. Öll þrjú sætin í annarri röð eru með festingum fyrir barnabílstóla og sætisbök í þriðju röð leggjast niður hvert fyrir sig með hnappi. Öll sex sætin í sex sæta útfærslunni eru að hluta til rafstillanleg. Í fyrsta sinn í Audi-bíl eru hurðirnar sjálfvirkar. Skynjarar stöðva þær ef hindrun er í vegi og mjúklokunarbúnaður sér um að loka þeim. Hægt er að opna og loka dyrunum frá mörgum stöðum í bílnum, auk þess sem hægt er að stjórna þeim með myAudi-smáforritinu. Stærsta glerþak sem Audi hefur sett í bíl er staðalbúnaður. Það er rúmlega 1,5 fermetrar að flatarmáli og hægt er að opna það eða halla því. Hægt er að stilla gegnsæi þaksins og lýsingin í glerinu tekur sama lit og stillanlega lýsingin í innréttingunni. Sú útfærsla verður þó ekki í boði strax. Innréttingin fæst í tveimur útfærslum með ólíkum búnaðarpökkum. Bogin OLED-ljós frumsýnd Afturljósin, sem byggja á þriðju kynslóð stafrænnar OLED-tækni, voru sýnd í fyrsta sinn í Brooklyn. Ytri einingarnar eru sveigðar í þrívídd og gerðar úr örþunnu gleri. Þannig sjást ljósin frá víðara sjónarhorni og hönnuðir gátu látið þau fylgja línum bílsins. Stefnuljósin varpa auk þess táknmynd á jörðina í myrkri og er hún samstillt við stefnuljósin að framan og aftan. Framljósin eru af gerðinni Digital Matrix LED og búin ör-LED-einingu. Þriggja lítra dísilvél í fyrstu Q9 kemur á markað með þriggja lítra V6-dísilvél sem skilar 220 kW, eða 299 hestöflum, og 630 Nm togi. Á völdum Evrópumörkuðum verður einnig í boði útgáfa sem skilar 180 kW, eða 245 hestöflum, og 500 Nm togi. Vélin er með MHEV plus-tækni og rafdrifinni forþjöppu sem á að skila snörpum viðbrögðum. Rafmótor styður við aflrásina með allt að 18 kW afli, sem samsvarar 24 hestöflum. Átta þrepa tiptronic- sjálfskipting og fjórhjóladrif eru staðalbúnaður. Uppgefin eldsneytiseyðsla er 8,0 til 7,4 lítrar á hverja 100 kílómetra og uppgefin losun koltvísýrings er 209 til 194 grömm á kílómetra. Verð og afhending Bíllinn er framleiddur í Bratislava í Slóvakíu. Pantanir hófust í Þýskalandi í lok júlí og afhendingar hefjast þar í nóvember. Grunnverð af Q9 TDI er 108 þúsund evrur í Þýskalandi. Þegar bíllinn er kominn hingað til lands má gera ráð fyrir að hann kosti um 30 til 35 milljónir króna vegna mjög hárra vörugjalda eftir breytingarnar sem tóku gildi í janúar. Á Bandaríkjamarkaði, sem er lykilmarkaður fyrir bílinn, byrjar verðið á 87.700 dölum. Aflmeiri SQ9-útgáfan, sem var frumsýnd samhliða í Brooklyn, kostar frá 118.000 dölum. Q9 kemur í sölu vestanhafs undir lok ársins sem árgerð 2027. „Í framtíðinni verður ‚Vorsprung durch Technik‘ í síauknum mæli skilgreint af upplifuninni inni í bílnum, því bílar eru miklu meira en farartæki. Fyrir marga viðskiptavini okkar eru þeir að verða hreyfanleg rými,“ segir Döllner. „Vandað efnisval, rafstillanleg einstaklingssæti í annarri röð og sjálfvirkar hurðir undirstrika kröfur okkar um gæði í innréttingunni. Þegar þetta fer saman við nýjustu aksturskerfin og heildstæða notendaupplifun verður ljóst hvert við stefnum með Audi.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article