Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir komst í kvöld í úrslit í fyrsta sinn á stórmóti þegar hún kastaði 70,31 m í fyrsta kasti á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í kvöld. Hún átti sjötta lengsta kastið í forkeppninni. Þrátt fyrir að komast þægilega í úrslit var hún nokkuð fúl með seinni tvö köstin sín í kvöld. „Já, mér fannst spennan detta aðeins niður hjá mér eftir að ég byrjaði á þessu 70 metra kasti. Það hefði verið allt í lagi ef ég hefði náð alveg lágmarkinu [71,50 m] því mig langaði að ná meira. En það skiptir ekki máli úr þessu, því ég var nokkuð viss um að þetta væri nóg og nú er bara að gíra sig upp fyrir úrslitin,“ sagði skælbrosandi Guðrún Karítas eftir að hún hafði tryggt sig inn í úrslit sleggjukastskeppninnar á EM í frjálsíþróttum í Birmingham í kvöld. Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir var hæstánægð með að tryggja sig inn í úrslit sleggjukastskeppninnar á EM í frjálsíþróttum í kvöld. Hún telur sig þó eiga meira inni og segir allt hafa farið samkvæmt plani í kvöld. Guðrún Karítas, sem er á sínu þriðja stórmóti, er nú komin í fyrsta sinn í úrslit sem er stór áfangi. En hvernig upplifði hún kastseríuna í kvöld?„Upphitunin var ekkert sérstök en ég fann samt alveg að ég var meira með sleggjunni og það var kraftur þarna. Svo náði ég bara að rúlla í gegnum fyrsta kastið án þess að það væri eitthvað sérstakt, en það var nógu langt. Þá svona fór ég að hugsa að þetta ætti að vera nóg og spennustigið datt aðeins niður hjá mér. Annað kastið var alveg fínt en mig vantaði aðeins upp á í lokin og svo sneri ég aðeins í síðasta kastinu. En ég er sátt með þetta, því þetta var alveg eins og planið mitt var. Ég var með þessa tölu í höfðinu að ef ég kæmist yfir 70 metrana þá væri það gott, þannig þetta gekk samkvæmt plani.“ Í stresskasti í allan dag En var þetta þá ekki bara þægilegur dagur á skrifstofunni fyrir Guðrúnu? „Já, og nei. Ég sat uppi á hóteli í allan dag í stresskasti. Ég róaðist eiginlega ekki fyrr en ég kom á völlinn. En þetta var samt þannig séð þægilegur dagur.“ Guðrún átti sjötta lengsta kastið í forkeppninni og fer því sjötta inn í úrslitin af tólf keppendum þar. En hvaða væntingar hefur hún fyrir úrslitakeppnina á miðvikudagskvöld? „Mér finnst ég eiga meira uppi í erminni og ég finn það alveg að ég á heima í þessum úrslitum. Núna þarf ég bara að setjast niður með þjálfaranum mínum og meta þetta. Við komum hingað á þetta mót til þess að keppa í úrslitunum, þannig að nú er bara að undirbúa sig fyrir það.“ Úrslitin ný áskorun en samt eðlilegri keppni En svo þarf að stilla spennustigið, enda á leið í úrslit á stórmóti í fyrsta sinn. Forkeppnin var þó að kvöldi til, sem er óvenjulegt í kastgreinum, og því fékk Guðrún kannski smá undirbúning á því í kvöld að keppa við svipaðar kringumstæður og úrslitin verða. „Já, þau munu meira að segja hefjast aðeins fyrr um kvöldið. Ég er í raun alveg bara tilbúin að fara upp á hótel núna og fara að sofa. En það verður vissulega ný áskorun að koma inn í úrslit og stilla sig af fyrir það. En það er samt bara í rauninni það sem maður er vanur að koma inn og keppa og ná inn í topp átta og fá þá fleiri köst og svona. Þannig að það er í raun eðlilegri keppni miðað við það sem ég er vön af öðrum mótum en þessi forkeppni í kvöld. Þannig dagskráin á morgun verður bara að stilla sig inn á það.“ Guðrún Karítas fer því kannski nokkuð pressulaus inn í úrslitin, en veit þó að ef hún gerir sitt og nær því besta úr sér er aldrei að vita hvað gerist. „Já, það er akkúrat svoleiðis. Maður er kominn þangað, en ég ætla samt að mæta í úrslitin og keppa því ég veit að ég á alveg fullt í þessar stelpur. Þannig að þetta verður bara skemmtilegt.“ Veit vel að hún getur kastað lengra „Ég veit alveg að ég get kastað lengra en ég gerði í kvöld og það er gott að finna hvað 70 metra kastið er í rauninni bara þægilegt fyrir mig. Það er bara þegar ég fer að ætla að gera eitthvað meira sem þau fara styttra. Þannig ég þarf bara að vera slök og negla á þetta,“ sagði Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir. Úrslit sleggjukastsins eru á dagskrá klukkan 18:45 á miðvikudag en bein útsending á RÚV 2 frá EM í frjálsíþróttum hefst klukkan 18:00.