Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppti í kvöld í fyrsta sinn í úrslitum stórmóts þegar hún endaði í 12. sæti sleggjukastskeppninnar á Evrópumótinu í Birmingham í Englandi. Fyrstu tvö köst hennar voru ógild en það þriðja mældist 67,24 metrar, eftir að hafa sleikt netið í kastbúrinu á leiðinni út. Guðrún fékk þann árangur því skráðan, en það dugði henni aðeins í 12. sæti sem virtist hafa verið undir hennar eigin væntingum enda hefur hún kastað stöðugt yfir 70 metra í sumar. Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir lauk keppni í 12. sæti sleggjukastskeppni kvenna eftir úrslit greinarinnar á EM í frjálsíþróttum í kvöld. Lengsta kast hennar mældist 67,24 metrar. Hún segir stressið hafa tekið yfir. „Ég er auðvitað drullufúl því ég var ekkert nálægt því þar sem ég ætlaði að vera. En stressið tók bara yfir. Auðvitað er það fúlt, en ég náði samt að njóta þess að vera þarna og náði allavega einu kasti inn og var þá með tölu á blaði. En mér leið vel bara í upphitun og að það væri mikill kraftur, það var því fúlt að ná ekki að sýna það,“ sagði Guðrún Karítas eftir úrslitin á EM í Birmingham í kvöld. Missti tenginguna við sleggjuna „Fyrsta kastið var ekkert langt frá því að vera gott. En stressið tekur yfir stundum og mér fannst ég ekkert vera eitthvað rosalega stressuð. En ég missti tenginguna einhvern veginn við sleggjuna og fór aðeins út fyrir hringinn í báðum fyrstu köstunum í rauninni. Síðan í síðasta kastinu var ég svona bara að reyna að bjarga einhverju og það var ekki nógu langt,“ sagði Guðrún, en síðasta kastið fór í netið, en hún sveif svo áfram út úr búrinu og lenti innan geira og mældist 67,24 metrar. Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir lauk keppni í 12. sæti sleggjukastskeppni kvenna eftir úrslit greinarinnar á EM í frjálsíþróttum í kvöld. Lengsta kast hennar mældist 67,24 metrar. Hún segir stressið hafa tekið yfir. Guðrún Karítas var í fyrsta sinn í úrslitum á stórmóti og náði þar með nýjum áfanga. Ef hún hefði kastað á sömu slóðum og hún gerði í forkeppninni í fyrrakvöld hefði hún barist um verðlaun. Því er eftirsjá þrátt fyrir nýjan og góðan áfanga. Á fullt erindi meðal þeirra bestu „Já, auðvitað. Ef þú skoðar úrslitin í dag þá hef ég alveg fullt að gera meðal þeirra efstu. En úrslitin eru auðvitað þannig að það eru ekki allir upp á sitt besta og það voru nokkrar sem duttu út með mér eftir þrjú köst sem eru með þeim bestu. Þannig dagsformið skiptir miklu máli og því miður gekk það ekki hjá mér í dag. En ég var mjög ánægð með að komast í úrslit og það er oft erfitt finnst mér að mæta á þessi mót þegar markmiðið hefur bara verið að komast inn á þau. Ég var laus við það í ár því ég var á betri stað, en þá færðist það bara inn í úrslitin, því stóra markmiðið var að komast í úrslitin og það gekk upp. En svo fór það bara aðeins í hausinn. En núna er ég búin að prófa það og ég get ekki notað það lengur. Núna veit ég hvernig þetta er, og ég hef oft keppt á móti öllum þessum stelpum. Stundum vinn ég þær og stundum vinna þær mig. Þannig að þetta snýst bara um að hitta á það á réttum tíma og það gekk bara ekki í dag.“ Guðrún Karítas var í úrslitum stórmóts í fyrsta sinn og mun væntanlega læra heilmikið af þeirri reynslu. Slíkt sást til dæmis hjá Hilmari Erni Jónssyni í gærkvöld sem endaði í 7. sæti, en Hilmar keppti þá í annað sinn í úrslitum stórmóts, eftir að hafa endað tólfti á EM fyrir fjórum árum. Fúl en náði samt að njóta „Já, vonandi fæ ég tækifæri til að gera þetta aftur. Auðvitað er ég fúl með mína frammistöðu, en ég náði samt að njóta þess að vera þarna og samgleðjast þeim sem tókst að gera vel í dag. Ég þekki margar af þessum stelpum vel líka, þannig að það er líka gaman að sjá aðra gera vel þó að það sé fúlt á sama tíma að það gangi ekki vel hjá manni sjálfum. En auðvitað tek ég þetta með mér og hef þetta í reynslubankanum fyrir næstu skipti, vonandi,“ sagði sleggjukastarinn Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir.