Innlent | Morgunblaðið | 10.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: ESB er bákn en Ísland er einstakur demantur Albert Þór Jónsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Þegar frelsið minnkar hefur fólk minna svigrúm til athafna og færri valkosti. Í samfélögum gerist þetta oft vegna aukinnar miðstýringar eða þyngri reglugerða. Þar er ESB fremst í flokki enda miðstýrt hernaðar- og tollabandalag sem takmarkar einstaklingsfrelsi, atvinnufrelsi og frelsi fólks til betra lífs. Demantar myndast í náttúrunni undir gríðarlegum þrýstingi og hita í jörðu niðri, en demantar eru sterkasta efnið sem þekkist. Ísland er land friðar, endurnýjanlegrar orku, nægs vatns og fremsta sjávarútvegs í heimi auk þess sem birtan og miðnætursólin er einstök yfir sumartímann. Íslenskur sjávarútvegur og landbúnaður eru hornsteinar íslensks samfélags og þekkingariðnaðar. Margar af helstu náttúruauðlindum og framtíðarverðmætum Íslands eru á landsbyggðinni sem er hinn óslípaði demantur Íslands. Efnahagslögsaga Íslands er svæði utan landhelgi sem afmarkast af línu sem alls staðar er 200 sjómílur frá grunnlínum landhelginnar. Innan efnahagslögsögunnar hefur Ísland: fullveldisrétt að því er varðar rannsóknir, hagnýtingu, verndun og stjórnun auðlinda, lífrænna og ólífrænna. En einnig aðrar athafnir varðandi efnahagslega nýtingu og rannsóknir innan svæðisins, svo sem framleiðslu orku frá sjávarföllum, straumum og vindi, Íslenska víðáttan, náttúra sem er einstök og ómetanleg gæði sem Ísland býr yfir. Ótrúleg tækifæri eru víða á landsbyggðinni og bíða eftir því að fólk sem lætur að sér kveða nýti þau. Mörg fyrirtæki á landsbyggðinni eru í eigu aðila sem eru snarpir, með skýra framtíðarsýn og happafengur fyrir viðkomandi byggðarlög. Ísland hefur nóg af vatni, endurnýjanlegri orku, hreinu lofti og náttúruauðlindum sem gera Ísland að einu verðmætasta landi heims. Ísland er með eitt af þremur bestu lífeyriskerfum í heimi, sem byggir á fullri sjóðsöfnun og með góða áhættudreifingu í fjárfestingum um allan heim. Ísland er einstakt land vegna legu sinnar, menningar, íslenskrar tungu, ómengaðrar náttúru, náttúruauðlinda og hæfileikaríkra Íslendinga á mörgum sviðum. Styrkleikar landsins felast einnig í smæð landsins, íbúafjölda og vel menntaðra Íslendinga á fjölmörgum sviðum. Stofnun lýðveldis á Íslandi árið 1944 markaði endalok sambands Danmerkur og Íslands sem hafði staðið í aldir. Smám saman höfðu Íslendingar þó fengið aukið sjálfstæði. Fyrst fengum við löggjafarvald í séríslenskum málum árið 1874, heimastjórn 1904 og loks fullveldi 1918. Fullveldisviðurkenningin fól í sér að Ísland varð sjálfstætt ríki. Kraftinum af landsbyggðinni frá vinnusömum bændum og sjómönnum sem lögðu grunn að Íslandi nútímans þarf að gefa tilheyrandi virðingu. Íslenski fjársjóðurinn mun ávaxtast vel horft til framtíðar vegna þess að eftirspurn eftir vatni, orku, hreinu lofti, náttúrufegurð og hreinum og lífrænum matvælum á eftir að margfaldast og hækka í verði vegna mikillar eftirspurnar. Ísland er demantur og einstakt fyrir þá sem eru víðförlir og elska frið, kyrrð og einstaka náttúrufegurð. Látum ekki blekkingar stjórnmálamanna villa okkur sýn með frelsisskerðingu á okkar dýrmæta og einstaka landi. Ísland er land tækifæranna og nýrra hugmynda. Áfram Ísland. Albert Þór Jónsson, viðskiptafræðingur (Cand. Oecon) Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Óvenjuleg vinátta Haalands vekur athygli Lík í ferðatösku reyndist vera kynlífsdúkka Aðsend grein: ESB er bákn en Ísland er einstakur demantur Aðsend grein: Hvað heldur eiginlega dyrunum opnum? Þetta eru bestu flugvellir Evrópu Umræðan Skaðleg samúð ESB er bákn en Ísland er einstakur demantur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Snýst ekki um það hver er að tala“ Ég er ekkert að fegra lífið Enski boltinn 25% dýrari Rannsaka manndráp á Kársnesi Mest lesið Í gær Í vikunni Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Andlát: Wilhelm Wessman Slasaðist eftir fall í gil við Háafoss Loka húsnæðinu vegna myglu Umferðartafir á Suðurlandi vegna óvæntrar fræsingar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Allt að 19 stiga hiti í dag Maðurinn er kominn í leitirnar Rannsaka manndráp á Kársnesi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Fjöldi líkamsárása í borginni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Fluttur á slysadeild eftir árás í heimahúsi Kristrún leggur land undir fót og boðar fundaröð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Nýjast á mbl.is » Óvenjuleg vinátta Haalands vekur athygli Lík í ferðatösku reyndist vera kynlífsdúkka Aðsend grein: ESB er bákn en Ísland er einstakur demantur Aðsend grein: Hvað heldur eiginlega dyrunum opnum? Þetta eru bestu flugvellir Evrópu Umræðan Skaðleg samúð ESB er bákn en Ísland er einstakur demantur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Mest lesið Í gær Í vikunni Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Andlát: Wilhelm Wessman Slasaðist eftir fall í gil við Háafoss Loka húsnæðinu vegna myglu Umferðartafir á Suðurlandi vegna óvæntrar fræsingar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Allt að 19 stiga hiti í dag Maðurinn er kominn í leitirnar Rannsaka manndráp á Kársnesi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Fjöldi líkamsárása í borginni Maðurinn er kominn í leitirnar Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Fluttur á slysadeild eftir árás í heimahúsi Kristrún leggur land undir fót og boðar fundaröð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“