Fimm Íslendingar synda í undanrásum á EM í sundi í dag en keppni hófst klukkan 7:30 og stendur enn yfir. Sýnt er beint frá mótinu á RÚV. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Vala Dís Cicero keppa í 50 metra skriðsundi og Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson synda 50 metra bringusund. Þá syndir Hólmar Grétarsson 200 metra flugsund. Enginn Íslendingur keppir á EM í frjálsum í dag en þeir Sindri Hrafn Guðmundsson og Baldvin Þór Magnússon keppa í úrslitum í spjótkasti og 10.000 metra hlaupi annað kvöld. Forkeppnin í stangarstökki karla hefst í dag og þar verður fróðlegt að fylgjast með heimsmethafanum Armand Duplantis. Sjöþraut kvenana fer sömuleiðis af stað og í kvöld verður keppt í úrslitum til að mynda í kringlukasti kvenna, hástökki karla og 200 metra hlaupi karla. Dagskráin 14. ágúst 7:30 EM í sundi - RÚV 9:30 EM í frjálsum - RÚV 16:25 EM í sundi - RÚV 18:30 EM í frjálsum - RÚV 2