Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

3.500 tonn af makríl til vinnslu

Read Full Article →

Síldarvinnslan hefur tekið á móti um 3.500 tonnum af makríl til vinnslu það sem af er yfirstandandi vertíð. Beitir NK kom með 400 tonn til Neskaupstaðar síðastliðna nótt og hófst löndun og vinnsla á þeim afla strax og komið var í höfn. Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, sagði að aflinn væri þeirra eigin og einnig frá Margréti EA og Vilhelm Þorsteinssyni EA, en þessi skip eru í veiðisamstarfi. „Veitt var frekar norðarlega í Smugunni og voru að fást 100-120 tonna hol, en dregið var í eina sex tíma. Menn þurfa að hafa fyrir því að finna makrílinn og þar sem hann finnst er veiði yfirleitt í stuttan tíma. Fiskurinn er fljótur að hverfa. Svona hefur þetta alltaf verið með blessaðan makrílinn. Núna er bræla á miðunum úti í Smugu. Ég geri ráð fyrir því að löndun hjá okkur ljúki um miðnætti og þá verður haldið beint til veiða á ný,” sagði Tómas. Haft var samband við Karl Rúnar Róbertsson, gæðastjóra í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, og segir hann í samtali við tíðindamanna heimasíðu Síldarvinnslunnar að vinnslan gangi vel. „Skipin koma að landi með mjög góðan makríl sem gengur vel að vinna. Þegar makríllinn kemur til okkar er hann ferskur og fínn enda er hann vel kældur um borð í skipunum. Langmest af makrílnum hefur verið heilfryst enda hefur sáralítil áta verið í honum til þessa. Við höfum hausað örlítið brot af aflanum sem hefur borist til okkar en ekkert hefur verið flakað ennþá. Nýtingin á hráefninu sem skipin koma með er hreint út sagt frábær. Hjá okkur í fiskiðjuverinu ríkir mikil ánægja með gang mála á vertíðinni en veiðin mætti vera heldur meiri og jafnari,” sagði Karl Rúnar.

Share this article