Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Í ökkla eða eyra með makrílinn

Read Full Article →

Síldarvinnslan segir frá því að Börkur NK kom til Neskaupstaðar síðdegis í gær með 720 tonn af makríl og hófst þegar löndun og vinnsla á aflanum í fiskiðjuverinu. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri sagði að veiðin hefði verið misjöfn í túrnum. „Þetta er að mestu okkar eigin afli en eins fengum við afla frá Beiti NK að þessu sinni. Það kom mjög gott veiðiskot um daginn og þá fengum við 350 tonna hol eftir að hafa dregið stutt. Síðan hvarf fiskurinn og þá hófst leit. Nú er heldur lítil veiði en það gæti breyst skyndilega. Svona hafa makrílveiðarnar gjarnan verið, það er ýmist í ökkla eða eyra. Fiskurinn er gjarnan á fleygiferð og kemur og fer. Það var fínt veður í túrnum og við vorum lengst af í miðri Smugunni en færðum okkur nær norsku línunni þegar á leið. Ég geri ráð fyrir að löndun ljúki í nótt eða í fyrramálið og þá verður strax haldið til veiða á ný,“ sagði Hjörvar.

Share this article