Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Það var bara vont að kasta“

Read Full Article →

Erna Sóley Gunnarsdóttir endaði í 22. sæti af 27 keppendum í forkeppni kúluvarpskeppni kvenna á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham á Englandi í dag. Lengsta kast Ernu var 15,72 m, en kasta þurfti 18 metra eða lengra til að komast í úrslit. Sú tólfta og síðasta inn í úrslitin var með kast upp á 17,62 metra, þannig að Ernu vantaði tæpa tvo metra upp á. „Þetta var bara ekki alveg nógu gott. Ég var bara að reyna að stilla mig af í köstunum og reyna að finna meiri kraft og sprengju en ég náði því bara ekki í dag, því miður,“ sagði Erna Sóley eftir að hafa lokið þátttöku á EM í frjálsíþróttum í Birmingham í dag. Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir endaði í 22. sæti á EM í frjálsíþróttum í dag. Hún kemst því ekki í úrslit en hún sagðist hafa fundið fyrir sársauka í hverju kasti í dag vegna meiðsla. Erna hefur glímt við meiðsli í sumar og tímabilið hefur verið erfitt hjá henni. „Þetta er í raun og veru í takt við það hvernig ég hef verið að undanförnu. Ég var að vonast til þess að ég hefði stigið upp úr þessu samt og fengi betra kast í dag en það gerðist því miður ekki. Það var bara vont að kasta og það er rosalega erfitt að vinna sig upp úr því þegar eitthvað er vont og maður er að reyna að kasta í gegnum sársaukann, það er alveg ofboðslega erfitt.“ Meiðsli ofan á meiðsli „Ég hef verið með bakmeiðsli að undanförnu en var líka með handameiðsli. Þannig að þó að ég hafi alveg glímt við meiðsli áður þá er það alveg rosalega erfitt að komast yfir svona og vita ekki heldur nákvæmlega hver staðan á bakinu sé,“ sagði Erna Sóley við RÚV eftir kúluvarpskeppnina á EM í dag. Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir endaði í 22. sæti á EM í frjálsíþróttum í dag. Hún kemst því ekki í úrslit en hún sagðist hafa fundið fyrir sársauka í hverju kasti í dag vegna meiðsla. En hvernig er að koma inn á stórmót eins og EM og takast á við vonbrigði? „Það er ofboðslega erfitt. En ég hef farið í gegnum nokkur vonbrigði á mótum að undanförnu og ekki verið alveg nógu sátt við það hvernig ég kasta. En maður bara mætir og gerir sitt besta, reynir að keppa, reynir að koma sér í gegnum þetta og vinna önnur lönd. En svo bara gerist það að maður er á stað sem mann langar ekki til að vera. Ég var með há markmið fyrir þetta ár en svo gerast hlutir sem maður hefur ekki stjórn á, þannig árið endar svona sem er mjög leiðinlegt. En það er ekkert annað að gera en að halda áfram.“ Nú tekur við hvíld En hvað tekur Erna Sóley út úr EM og hvernig sér hún fyrir sér næstu vikur og mánuði? „Ég ætla að taka mér smá hvíld núna og reyna að jafna mig af þessum meiðslum. Síðan er það bara að ná góðu uppbyggingartímabili. Það sem ég tek út úr þessu móti er að ég eigi alveg heima í úrslitum EM ef ég er heil. Það þurfti ekki þannig sé mikið til að komast í úrslit í dag, þannig að ég veit alveg að ég á það í mér ef ég er heil og góð. Það er markmiðið að ná því og ná svo bara enn lengra,“ sagði kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir.

Share this article