Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Að komast í úrslit alltaf markmiðið

Read Full Article →

Elísabet Rut Rúnarsdóttir keppir í forkeppni sleggjukasts kvenna á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham á Englandi í kvöld. Hún er í A-riðli sem hefst klukkan 18:10 í kvöld en bein útsending RÚV 2 frá EM í kvöld verður frá klukkan 18:00. „Ég er bara mjög spennt og hlakka mikið til að keppa. Það hefur líka verið mjög góð stemning í íslenska hópnum sem hvetur mann sömuleiðis áfram,“ segir Elísabet Rut. Elísabet Rut Rúnarsdóttir keppir í sleggjukasti á EM í kvöld. Hún stefnir á sæti í úrslitum. Elísabet segist spennt og tilbúin í slaginn. En hver eru markmiðin í kvöld hjá Elísabetu? „Það er að hafa gaman að þessu og kasta eins langt og ég get.“ Kasta þarf 78 metra eða lengra til að vera örugg í úrslit, en annars komast tólf efstu eftir forkeppnina inn í úrslitin sem verða á miðvikudagskvöld. En er raunhæft markmið að komast í úrslit? Kemur inn á EM meðal tíu efstu „Ég myndi segja það já, því ég kem inn á þetta mót í topp tíu. Þannig að vonandi kemst maður í úrslitin, það er auðvitað alltaf markmiðið á þessum mótum. Þannig ég mun bara negla á það og vona það besta,“ segir Elísabet Rut. En hvernig líst henni á aðstæður í Birmingham? „Aðstæðurnar hérna eru frábærar og völlurinn er æðislegur. Hitinn hefur verið þægilegur, þannig ég hlakka mjög mikið til að kasta og sjá hvernig stemningin verður á vellinum.“ Bretar eru einmitt þekktir fyrir að fjölmenna á stórmót í íþróttum sem haldin eru á þeirra grundu og Elísabet er spennt að upplifa þá stemningu og umgjörð. „Það er einmitt óskandi að það verði vel mætt og góð stemning, því það myndi hjálpa manni sem mest í keppninni.“ Tímabilið orðið langt og strangt Tímabilið er þó orðið frekar langt hjá Elísabetu, sem nemur við háskólann í Austin í Texas í Bandaríkjunum og þar hefst frjálsíþróttatímabilið mun fyrr en í Evrópu. „Það er búið að passa vel upp á mig og að höfuðið sé rétt skrúfað á mig á þessum tímapunkti. Það hefur farið mikil vinna í það að halda mér góðri þegar tímabilið er svona langt. En þetta er EM sem við erum að tala um núna, þannig maður verður bara að vera í gír og klára þetta með stæl.“ Elísabet missti af síðasta keppnissumri vegna meiðsla og þar með HM, en hún fór hins vegar á EM í Róm fyrir tveimur árum. En hvernig upplifir hún muninn á sér þá og nú? „Þá var ég náttúrulega að koma beint úr bandaríska tímabilinu og náði ekki einu sinni heilum sólahring á Ítalíu áður en ég keppti á EM þá. Þannig að ég er allavega betur út hvíld á þessu Evrópumóti en því síðasta. Þannig ég hef fulla trú á því að þetta fari vel,“ segir Elísabet Rut Rúnarsdóttir. Keppni í A-riðli sleggjukastskeppninnar á EM í frjálsíþróttum hefst sem fyrr segir klukkan 18:10 í kvöld. Sýnt verður beint frá morgunhluta EM á RÚV frá klukkan 9:30 í dag en frá kvöldhlutanum á RÚV 2 frá klukkan 18:00.

Share this article