„Ég er bara vel stemmd, þetta verður skemmtilegt og vonandi gengur vel á morgun,“ segir kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir sem keppir í forkeppni kúluvarps kvenna á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham í fyrramálið klukkan 9:35. Kasta þarf 18,20 metra í forkeppninni til að komast í úrslit, en annars komast þó tólf í úrslit með lengstu köstin. Hver keppandi fær allt að þrjú köst í forkeppninni. En hvaða væntingar hefur Erna til keppninnar? Erna Sóley Gunnarsdóttir keppir í forkeppni kúluvarps á EM í Birmingham í fyrramálið. Hún hefur glímt við meiðsli og ýmsa erfiðleika á árinu. Erna ætlar að njóta keppninnar og vonast til að enda erfitt ár með stæl. „Markmiðin eru bara að fara inn í keppnina, keppa og gera mitt allra besta. Þetta hefur verið erfitt ár en það væri gaman að koma og klára þetta ár með stæl,“ segir Erna og er svo beðin um að útskýra nánar þessa erfiðleika. „Það er bara alls konar, meiðsli og slíkt sem hefur verið í gangi. Það er náttúrulega erfitt að komast upp úr því, en maður vinnur sig bara úr því samt bæði andlega og líkamlega smátt og smátt. Svo reynir maður bara að gera sem best þegar maður kemur inn á svona mót eins og EM.“ Inni á nánast öllum stórmótum Það hlýtur þó að vera jákvætt að hugsa til þess að þrátt fyrir erfiðleikana hafi sæti hennar á EM aldrei verið í neinni hættu. „Nei, það er alveg rétt. Ég átti ágætt innanhússtímabil sem skilaði mér sætinu hér á EM utanhúss og það er bara frábært að fá að vera hérna. Ég ætla að njóta þess að keppa og gera mitt allra besta og reyna að enda eins ofarlega og ég get,“ segir Erna Sóley sem hefur þó nánast verið í áskrift að því að keppa á stórmótum frá árinu 2022, hvort sem er EM, HM eða Ólympíuleikar. „Það er mjög erfitt að komast inn á þessi mót og alls ekki sjálfgefið. Þannig maður er bara þakklátur fyrir það að geta haldið sér inni í þessari hringiðu svona lengi. Þetta er þriðja Evrópumótið mitt utanhúss í röð og þó að ég hefði viljað vera á betri stað en akkúrat núna fyrir þetta mót þá er ég bara mjög ánægð með að vera hérna og mig langar til að nýta það tækifæri vel,“ segir Erna Sóley. Hófstilltar væntingar Væntingarnar hjá Ernu fyrir keppni morgundagsins eru því í hófstilltara lagi. „Þær eru hófstilltar en það er nú alltaf þannig að maður bara mætir og keppir og gerir sitt allra besta og vonandi get ég fengið að draga það út á morgun. Maður veit aldrei hvað getur gerst.“ Erna Sóley keppir í A-riðli kúluvarpsins í fyrramálið klukkan 9:35. Sýnt verður beint frá EM í frjálsíþróttum á RÚV frá klukkan 9:30.