Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Blendnar tilfinningar við að sjá flakið

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 10.8.2026 | 12:45 Blendnar tilfinningar við að sjá flakið Frami kom í snurvoð Bárðar SH 81 en hann býr yfir mjög öflugum veiðarfærum sem gerir honum kleift að veiða nálægt landi. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Fjóla K. Guðmundsdóttir Ólafur Bernódusson Setja bókamerki Dragnótabáturinn Bárður SH 81 kom í síðustu viku með bátsflak til hafnar á Skagaströnd. Flakið reyndist vera af Frama HU 25 sem fórst á leið í línuróður 28. október 1989. Flakið fékk Bárður í snurvoðina ekki langt norðan við Skagaströnd á tiltölulega litlu dýpi. Eigandinn, Þorvaldur Skaftason var einn um borð og var nálægt því að fara niður með bátnum sem sökk hratt eftir að brot kom á hann að aftanverðu. Hann býr nú í Hafnarfirði og segir það hafa vakið blendnar tilfinningar að sjá myndir af flakinu 37 árum eftir að slysið varð. Rýndu í óljósar merkingar Starfsmenn Skagastrandarhafnar ráku upp stór augu þegar skipið Bárður SH kom til hafnar með um sjö metra langt flak af trébát. Báturinn hafði greinilega verið rauðgulur að lit þegar hann sökk en undir var eldri, hvít málning. Viðstaddir reyndu að rýna í merkingar bátsins til að komast að uppruna hans þar sem ekkert nafn var sjáanlegt á ytra byrði bátsins en nokkrar merkingar sáust, þar á meðan HU-25, en einnig SH og SK með ógreinilegum númerum. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að umræddur bátur hafði heitið Lómur SH-83 þegar hann kom til Skagastrandar árið 1985. Þá fékk hann nafnið Skarfur HU-66 en árið 1988 var hann seldur Þorvaldi Skaftasyni sem gaf bátnum nafnið Frami HU-25. Ekkert nafn sást á flakinu og erfitt að greina merkingar. Ljósmynd/Skagastrandarhöfn Báturinn sökk hratt Um sexleytið að morgni 28. nóvember 1989 var Þorvaldur á siglingu á Húnaflóa, norður undan bænum Bakka á Skaga, þegar báturinn fylltist af sjó og sökk á skammri stundu. Þorvaldi auðnaðist að skjóta upp neyðarblysi sem sást úr landi og var björgunarsveitinni á Skagaströnd gert viðvart. „Ég var búinn að vera á siglingu í hálftíma eða svo og var á fullri keyrslu þegar báturinn hljóp undan kviku og fylltist af sjó,“ er haft eftir Þorvaldi í umfjöllun Morgunblaðsins daginn eftir slysið. „Ég var of seinn að slá af, hafði verið með sjálfstýringuna á og var að rétta af lóraninn en þegar báturinn fylltist drapst strax á vélinni og báturinn varð rafmagnslaus.“ Nú, 37 árum seinna, ræðir hann við Morgunblaðið á ný. Hann segir ýmsar tilfinningar hafa fylgt því þegar hann frétti að báturinn hefði verið heimtur úr hafi. „Það var svolítið blendið að upplifa það aftur,“ segir Þorvaldur sem býr nú í Hafnarfirði. „Sonur minn sem býr á Skagaströnd var búinn að vara mig við. Hann frétti af því að það hefði eitthvað komið upp og þeir voru með snurvoð á þessari slóð þar sem þetta gerðist. Það var eitthvað sem passaði við litina á Frama, hann var appelsínugulur.“ Hékk á stefni bátsins Þorvaldur minnist þess vel hversu hætt hann var kominn þegar Frami fór niður en hann rétt komst út úr stýrishúsinu og báturinn sökk hratt. „Stefnið á honum kom upp og ég hékk þar þegar ég var að berjast við að opna björgunarbátinn en það gekk mjög illa,“ rifjar Þorvaldur upp. Þorvaldur Skaftason Hann útskýrir að erfiðlega hafi gengið að toga í línu sem verður til þess að báturinn blæs út. Það tókst ekki fyrr en Þorvaldur náði loks að spyrna í bátinn og rífa í línuna. „Sem betur fer opnaðist hann á réttri hlið. Um leið og ég vippaði mér upp í hann þá sökk báturinn. Ég rétt slapp.“ Hann segist ekki gera sér grein fyrir því enn þann dag í dag hversu langur tími leið frá því að báturinn tók að sökkva og þar til hann komst um borð í björgunarbátinn. Í viðtalinu sem Morgunblaðið tók við Þorvald aðeins nokkrum tímum eftir slysið sagðist hann hafa sparað blysið drjúga stund. „Ég sá í land en ákvað að bíða með að skjóta upp neyðarblysi því ég vissi að menn myndu fara til rjúpna og skaut ekki upp blysi fyrr en ég sá til bíls á veginum. Sá sneri beint við og heim að Bakka,“ sagði Þorvaldur árið 1989. Í dag getur hann betur útskýrt þankagang sinn á þessari stundu. „Ég var náttúrlega í losti eftir þetta og ég hugsaði með mér: ég fer ekkert að ónáða bændurna.“ Þess vegna hafi hann ákveðið að bíða eftir rjúpnaskyttunum og síðan gripið tækifærið þegar hann sá bíl. Frami HU-25 hét áður Lómur SH-83. Mynd úr bókinni Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908-2010. Presturinn beið hans heima Í huga Þorvaldar er minningin um þennan atburð enn þá hálfóraunveruleg. „Ég trúði því varla að þetta hefði skeð. Trúi því eiginlega ekki enn,“ segir hann. „Ég var búinn að vera til sjós allt mitt líf og hef lent í ýmsu en aldrei neinu svona.“ Hann bætir því við að frá því að björgunarsveitin hafi náð honum um borð í bát sinn muni hann lítið. „Ég gat eiginlega ekki talað eða neitt,“ segir hann. „Það eina sem ég man og mér þykir vænt um er að presturinn var heima þegar ég kom og hann tók utan um mig. Hann var sá eini sem tók utan um mig.“ Þá þjónaði séra Ægir Sigurgeirsson á Skagaströnd. Hann hafði heyrt af slysinu og farið á heimili Þorvalds til að bíða hans. Sem fyrr segir býr Þorvaldur nú í Hafnarfirði en hann flutti alfarið frá Skagaströnd árið 1995 eftir enn eitt áfallið. „Þá sekkur bátur sem ég á, eða hvolfir í höfninni undan snjó og ísingu,“ segir hann. „Þá missti ég annan bát og þá gafst ég upp. Við fluttum svo '96 í burtu.“ Þá hafði Þorvaldur fest kaup á Húna II sem hann hafði ákveðið að varðveita og flutti hann með sér til Hafnarfjarðar. Húni II er nú á Akureyri og er hann stærsti varðveitti eikarbátur landsins og mikilvæg heimild um siglingasögu Íslands. Frétt af mbl.is Vildi ekki að báturinn glataðist Léttir og uppgjör Þorvaldur segir að þegar hann sá myndirnar af flaki Frama HU hafi þær komið sér á óvart. „Ég átti eiginlega ekki von á því að hann væri orðinn svona illa farinn,“ segir Þorvaldur. Aðspurður hvort hann hafi jafnvel ekki búist við því að sjá þennan bát aftur hugsar hann sig um og segir svo: „Jú, ég hafði alltaf einhverja tilfinningu fyrir því að hann myndi koma upp í veiðarfæri. Bara einhver svona undirmeðvitund.“ Hann segir að það sé því að vissu leyti ákveðinn léttir og uppgjör við atburðinn að sjá skipið aftur á landi. „Ætli ég sé ekki bara að taka það uppgjör við þig núna. Ég gæti trúað því.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Snerti taug í mörgum í salnum Evrópskur verndari hafsins í Reykjavíkurhöfn Kobbi Láka sótti bilaðan fiskibát Bandero fært úr Sundahöfn Fyrsta makrílnum landað í Neskaupstað Einar Örn nýr forstjóri First Water Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Samningur rann út 1. ágúst ESB mun semja fyrir okkur Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Bandero fært úr Sundahöfn ESB mun semja fyrir okkur Fyrsta makrílnum landað í Neskaupstað Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Samningur rann út 1. ágúst Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Einar Örn nýr forstjóri First Water Gæti tekið vikur vegna mismunandi þjóðerna Skipum fjölgar nú á makrílmiðunum Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Bandero fært úr Sundahöfn Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Einar Örn nýr forstjóri First Water ESB mun semja fyrir okkur Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Samningur rann út 1. ágúst Birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann Skipverjarnir frjálsir ferða sinna 964 tonnum bætt í strandveiðipottinn Fleira áhugavert Myndaði vettvang slyss á meðan hann ók Rannsaka manndráp á Kársnesi Öll hótel uppbókuð og engir bílaleigubílar eftir Ég er ekkert að fegra lífið Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 7.8.26 641,14 kr/kg Þorskur, slægður 7.8.26 755,87 kr/kg Ýsa, óslægð 7.8.26 473,84 kr/kg Ýsa, slægð 6.8.26 443,90 kr/kg Ufsi, óslægður 7.8.26 203,51 kr/kg Ufsi, slægður 6.8.26 317,12 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 7.8.26 372,44 kr/kg Litli karfi 5.8.26 20,00 kr/kg Blálanga, óslægð 6.8.26 299,25 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 10.8.26 Aldís NS 73 Handfæri Þorskur 764 kg Ufsi 11 kg Ýsa 3 kg Samtals 778 kg 10.8.26 Jökla ST 200 Handfæri Þorskur 778 kg Samtals 778 kg 10.8.26 Axel NS 15 Handfæri Þorskur 818 kg Ufsi 7 kg Samtals 825 kg 10.8.26 Guðborg NS 336 Handfæri Þorskur 792 kg Samtals 792 kg 10.8.26 Bergdís HF 32 Handfæri Þorskur 137 kg Karfi 12 kg Samtals 149 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Snerti taug í mörgum í salnum Evrópskur verndari hafsins í Reykjavíkurhöfn Kobbi Láka sótti bilaðan fiskibát Bandero fært úr Sundahöfn Fyrsta makrílnum landað í Neskaupstað Einar Örn nýr forstjóri First Water Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Samningur rann út 1. ágúst ESB mun semja fyrir okkur Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Bandero fært úr Sundahöfn ESB mun semja fyrir okkur Fyrsta makrílnum landað í Neskaupstað Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Samningur rann út 1. ágúst Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Einar Örn nýr forstjóri First Water Gæti tekið vikur vegna mismunandi þjóðerna Skipum fjölgar nú á makrílmiðunum Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Bandero fært úr Sundahöfn Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Einar Örn nýr forstjóri First Water ESB mun semja

Share this article